Flugfreyjur og Armani
Ég verð að segja ykkur frá honum Arya frá Iran.
Ég var að labba út í fyrrakvöld og fá mér að borða með honum Martin. Við Martin vorum að fara halda upp á það að hann væri búin að kaupa eitt það rosalegasta borðstofuborð sem sést hefur norðan suðurskautsins. Þegar ég var kominn nokkra metra frá nýju íbúðinni minni í dimmu húsasundi kemur þessi strákur á motorhjóli og stoppar hjá mér. Hann spyr hvort hann ætti ekki að skutla mér...eitthvert. Ég þurfti að fá nánari útskýringu á þessu boði hans. Hann þekkti mig jú ekki og við vorum í dimmu húsasundi og ég hef jú alla burði til að vera fjöldamorðingi! Ég hugsaði mig einu sinni um hvort ég ætti að henda í svona tappa. Hann gæti líka verið fjöldamorðingi. En þetta var jú mótorhjól en ekki Volvo station (sem ég hef heimildir fyrir að séu almennt notaðir af fjöldamorðingjum) svo ég skellti mér aftaná gripinn hans.
Ég komst á leiðarenda í heilu lagi með alla útlimina á sínum stað. Í kaupæti fékk hann símanúmerið mitt. Hann ætlaði jú að bjóða mér að mæta á opnun á eitthverju sem ég hafði ekki hugmynd um hvað var í gær enda komst ég að því að tappinn væri hönnuður, MBA stúdent frá Íran og síðast en ekki síst Bollywoodmyndaframleiðandi. Ekki ónýtt það. Ég var líka alveg seldur þegar hann sagði að hann gæti örugglega notað mitt "exótíska" útlit í næstu Bollywood mynd sinni (Haukur, here we come…).
Til þess að ég myndi ekki hanga yfir sjónvarpinu í gærkvöldi sendi ég Arya skilaboð og rukkaði um þessa sýningu hans. Hann, ánægður, sendir mig á eitt af fínni hótelum í bænum. Ég álpast þar inn, þykist vera merkilegur með stjórn á öllu og spyr hvar sýningin sé. Þrátt fyrir að þetta hafi verið harðlokuð sýning, opnun á nýju útibúi eitthverrar risa snyrtistofukeðju, tókst mér samt að sannfæra starfsfólkið að ég væri mjög mikilvægur og yrði hreint og klárt að komast inn.
Þarna kem ég inn í þessa svakalegu veislu með allri elítu Bangalore: Menn í Armani, konur í Prada, sjónvarpsfólk og ljósmyndarar, opinn bar, fyrirsætur og flugfreyjur.
Vá. Ég passaði engan vegin þarna inn í gallabuxum og skyrtu.
Ég reyndi samt að gera gott úr þessu. Sveiflaði mér að næsta Armani jakkasetti og kynnti mig. Þetta var náttúrulega eigandinn, stórlax í bransanum. Maður á jú aldrei að byrja á botninum. Hann bauð mig velkominn og sagði mér hvar barinn var!
Ég sat þarna yfir tískusýningu á franskan mælikvarða og sötraði 12 ára gamalt viskí.
Allt þetta endaði með tveimur áfengisdauðum flugfreyjum í sófanum heima hjá mér.

4 comments:
Heyrðu, þú lætur okkur vita hvenær þú ferð að leika í Bollywood myndum. Svo sendirðu okkur að sjálfsögðu eintak!
Og elítupartý, held að þú þurfir að láta sauma á þig jakkaföt...
Þú verður að láta sauma kjólföt ef á að fara stunda heldrimannasamkvæmi.
Annars er það hepni þegar farið er á mótorhjóli hjá hverjum sem er.
Farðu varlega.
Þröstur segir að þú verðir sennilega að fá þér stærri sófa frekar en ný jakkaföt. Ég segi "Ætlarðu að drepa hana Mömmu"
Sé að þetta er allt að gera sig.
Eydís
Þú ert bara svona djöfulli hress!
Ég er ánægð með þig...en alveg sama hvað er mikið að gera í rokkinu og rafmagnsleysinu þá verðuru að taka hlutverkið í Bollywoodmyndinni!!!
Luv Tinna
Post a Comment