Wednesday, September 06, 2006

Nautakjöt út um allt

Í gær prófaði ég í fyrsta sinn að fara í bíó á Indlandi. Ég ákvað nú samt að fara ekki í fína efnið og útilokaði allar Bollywood myndir enda sannfærði ég sjálfan mig um að ég myndi ekki fá mikið úr söguþræðinum (ha-ha) á því að hlusta á Kannada (tungan sem töluð er í borginni og fylkinu). Ég fór því samviskusamlega á ágætis ameríska afþreyingarmynd sem heitir "The Break-Up". Þetta er jú svona dæmigerð stelpumynd enda fór ég á hana með þeim Iben og Viktoríu sem eru jú stelpur. Það er semsé hægt að finna Hollywood myndir hérna enda eru Indverjar mjög bíósjúk þjóð og má það sjá með þeim tugum af bíóhúsum sem dreift er um borgina. Þetta bíó var bara hið ágætasta og líkt hverju öðru fínu bíói á vesturlöndum.

Fyrir bíóið fórum við og fengum okkur hamborgara. Já, það er hægt að fá ágætis hamborgara og að meira segja var hægt að fá hamborgara úr ....já, þið getið getið aldrei giskað á það...nautakjöti! Nú sér maður bara nautakjöt á hverju strái, í landinu þar sem ekkert nautakjöt á að vera. Þetta var bara ágætis nautakjöt meira að segja og öll plön mín um að borða hollan og góðan indverksan mat í öll mál eru löngu foknar út úm gluggann. Nú verður bara rifið í sig próteinið.

Það sama má svo segja um daginn í dag. Við ákváðum, ég, Iben, Viktoría og Martin, sem er danskur strákur með góðan tónlistarsmekk og býr hérna í borginni, að fara og fá okkur almennilega nautasteik. Þessi nautasteik verður nú að segjast að vera bara meira en lítið góð og ekki verri en gerist á Hereford í Kaupmannahöfn. Enda getur maður nú ekki annað sagt en að í landi sem hefur eins mikið af nautum og kúum þá hlýtur að vera nóg til af almennilegu nautakjöti. Það er ekki eins og þjóðin sé að borða þetta frá manni!

No comments: