Saturday, September 16, 2006

Ný íbúð

Eftir enn einn dag í skordýrahelvítinu ákvað ég að nú væri komið nóg. Já, neyðin kennir naktri og allt það svo ég fór í dag og hitti leigumiðlarann. Hann fór með mig niður í bæ, við skoðuðum íbúð og ég sagði bara: "júbb, tek hana. Pakkaðu henni inn og ég kem á morgun og sæki". (Ég sagði það reyndar ekki. Ég er ekki svona fyndin!)

Vá. Eftir nokkra daga endar sambúðin með kakkalökkum og ósýnilegum blóðsugum.

Þannig að ég er búin að tryggja mér þakíbúð (Penthouse) nálægt miðbænum og skemmtanalífinu. Ég ákvað að gefa bara skít í að það væri langt í vinnuna. Ef maður vill hitta og umgangast skemmtilegt fólk þá þarf maður jú að vera á staðnum. Ekki að ég segi að fólkið í vinnunni sé eitthvað leiðinlegt. Það er alveg hægt að deila með því einu góðum leik í Bingó. Miðbærinn er samt bara í 5-10 mínútna fjarlægð og mér var lofað það það yrði aldrei meira en 40 mín að keyra í vinnuna í mjög mikilli umferð (hó, það er allt langt hérna).

Þessi kostagripur er 230 fm með þremur svefnherbergjum, risa koktelboðsverönd, sólstofu og þakgarði. Með í leigunna var svo hent einum eða tveimur þjónum sem þrífa, elda, þvo og búa í kjallaranum. Maður er alveg settur.

Í næstu þarf ég þá að fara út og setja sófa, rúm og stórt sjónvarp á reikninginn. Íbúðin kemur reyndar meira en kjaftfull af húsgögnum og tækjum en málið er hinsvegar að græni sófinn er ekki að passa nógu vel við löberinn. Maður er orðinn svo kresinn.

Þannig að núna þarf ég að fara planleggja innflutningspartí. Hmm...ég þarf að fara leggja höfuðið í bleyti og ég þarf að muna að það verður að verða álíka gott og innflutningspartíið hjá Martin. Hann er þó ekki búin að halda neitt ennþá en ef ég þekki hann rétt verður það eitthvað stórkostulegt sem inniheldur óteljandi flöskur af indversku Old Monk rommi.

Svo fyrir ykkur sem heima sitjið. Það er engin ástæða lengur fyrir ykkur að koma ekki í heimsókn. Íbúðin ber vel allan starfsmannaflota Hraðfrystihúss Eskifjarðar og þó fjölhæfur ég sé þá á ég erfitt með að sofa í þremur herbergjum á sama tíma.

No comments: