Friday, September 15, 2006

Gjöreyðingarvopn

Það eru fullt af skordýrum í þessu landi. Ekki bara það að þau búi úti í náttúrunni eða á götunni heldur gerist það líka að þau búa inni hjá manni án þess að borga leigu. Það gerist stundum líka að þau taki upp náin samskipti við þá einstaklinga sem virkilega borga leigu og reyni jafnvel að gera sjálfan sig úr þeim. Ég hef orðið vitni að þessu.

Ég hef meira segja orðið svo mikið vitni af þessu að eitthvað skordýr, skordýrafjölskylda eða jafnvel heil skordýraætt er búin að fá sinn skerf af mínu holdi hvorki meira né minna en sextán sinnum núna. Vandamálið er hinsvegar að ég hef bara ekkert séð þessi gjöreyðingarvopn sem búa hjá mér upp á síðkastið (fyrir utan Kalla kakkalakka sem ég steig "óvart" á inní stofu í gær) þannig að ég hef ekkert geta sagt þeim stríð á hendur. Maður skal jú vita hvar maður á að biðja um að sprengjunum sé hent (nú veit maður hvaða ákvarðanir Bush þarf að taka).

Ég hef bara tvær lausnir í stöðunni. Annað hvort get ég plantað nokkrum sex fóta gjöreyðingarvopnum í svefnherbergið og beðið eigandann um að bomba allt í loft með skordýraeitri eða ég get farið og reynt að finna vandamálið í eitt skipti fyrir öll. Fyrri lausnin er sjálfsögðu sú sem allir heilbrigðir einstaklingar myndu velja enda er ekkert auðveldara þar sem ég á nú þegar líkið af Kalla liggjandi á stofugólfinu. Það væri kannski mögulegt að ég gæti komið á borgarastyrjöld meðal skordýranna?

Ég ætla samt að reyna hitt. Það gæti samt orðið erfitt þar sem ég þarf að fara og reyna að rannsaka hvurslags bit þetta eru. Fyrir mér eru þetta bara venjuleg bit. Svona eitthvað vont sem manni klæjar í stanslaust og verður rauður af. Já já, þetta líkist moskítóbiti en ég hef bara ekki séð eina flugu af því kyni heima hjá mér og ofaná það hlýtur að vera að þær séu að planleggja þetta í hópum. Þá datt mér í hug hvort þetta séu eitthverjar laumuflær sem væru að bíta mig. Ég reyndi að rannsaka það eins og ég gat en gat bara ekki séð eina einustu. Kannski á maður bara ekki að geta séð þessi óargadýr en það er soldið magnað að þær geti sogið úr manni allt blóð og verið samt ósýnilegar.

Kannski eitthver þarna úti geti gefið manni góð húsráð?

3 comments:

Anonymous said...

Sæll Hannes
Var að koma heim frá Belfast
Fín ferð, hafði gott af.
Þetta með bitin. Fáðu þér ofnæmistöflur,Histasín, Cetirizin díhýdróklóríð, eða annað þvíumlíkt. Það fá allir bit í svona löndum, það er bara ofnæmisviðbrögðin. Farðu í Apotek.
Annars allt gott

Anonymous said...

Hvernig væri að fá sér litla eðlu, hún ætti að éta þau skordýr sem eru heima hjá þér. Annar möguleiki væri könguló en eðlur eru nú eiginlega huggulegri, er það ekki?

Anonymous said...
This comment has been removed by a blog administrator.