Monday, September 04, 2006

Umferðin

Þá er ný vinnuvika byrjuð. Ég vaknaði samviskusamlega við að nýr bílstjóri vakti mig. Nýji bílstjórinn heitir því myndalega, gilda enska nafni Richard og það verður nú víst að segjast að hann hefur farið á eitthvað meira en barbapabbaenskunámskeiðið sem sá fyrri fór á. Hann er greinilega líka soldið sniðugari því það tók hann næstum tuttugu mínútum skemur að koma mér í vinnuna í morgun. Það er sko vel af sér vikið í þessari umferð!

Talandi um umferðina hérna. Eins og ég hef svo oft sagt áður þá er hún hreint og klárt brjáluð. Ég myndi einfaldlega deyja í umferðarslysi ef ég myndi þurfa keyra í borginni. Svo einfalt er það bara. Það er engin sem fer eftir okkar skilgreiningum á umferðarreglum. Notkun umferðarljósa, fylgjandi hægrirétti, vinstrirétti, taka tillit til fótgangandi á miðjum veginum, vegra sér við framúrakstri öfugu megin, akstri á röngum vegarhelmingi eða láta það aftra sér að aka á móti einstefnu eru allt eins líklegt hér eins og marsbúar myndu birtast í fertugasta þætti af Derrick.

Hér er smá sýnishorn af umferðinni hérna ef þið eru ekki búin að sjá þetta:
http://postur.net/pics/organizense.wmv

Þessu til viðbótar lagði ég líf mit og limi í hættu í annað sinn í gær þegar ég skellti mér í annan túr í AUTO. Ég er búin að komast að því að þetta eru snilldar ökutæki og óneytanlega fljótlegasta leiðin til að ferðast um bæinn. Þessir kappar svífast enskis þegar kemur að því að vinna leikinn um hver brýtur fleiri umferðareglur á mínútu. Þeir virðast alltaf komast hraðar yfir en allir hinir. Hérna er ein mynd af svona apparati.

Ástæðan fyrir þessari ferð minni var að hitta þær Iben og Viktoríu og til borða með þeim af evrópska matseðlinum á veitingastað rétt þar sem þær búa. Þetta er lítið veitingahús sem bauð upp á eitthvað af evrópskum mat. Reyndar var allt annað nema indverskur matur skilgreindur sem evrópskur, hvort sem það var mexíkóskt eða kínverskt en það var nú ekkert til að velta sér upp úr.

Það merkilega við þetta ágætis veitingahús var samt það að þeir buðu upp á þessa fínu nautasteik!

Allar mínar hugmyndir af Indlandi eru hér og nú opinberlega brostnar.

Ég hlakka til að koma þarna aftur og smakka þessar kræsingar og rífa í mig heilagt dýr með piparsósu og kartöflum. Namm....

No comments: