Bengaluru
Það lítur út fyrir að ég komi ekki til með að búa í Bangalore eftir 1. nóvember. Það er samt ekkert svo slæmt þar sem ég þarf ekkert að flytja eitt fet. Hvernig er það nú hægt?
Jú, borgin sem ég bý í kemur ekki til með að heita Bangalore mikið lengur. Kapparnir í fylkisstjórn Karnataka (fylkið mitt) hafa ákveðið að eftir 1. nóvember komi þessi ágætis borg til að heita Bengaluru. Þeim finnst það líklega miklu flottara og það er augljóslega eitthvað sem maður getur bara gert yfir morgunkaffinu og mogganum.
Ekki það að þetta sé eitthver nýmæli hér í landi. Það er búið að vera í tísku að skipta um nafn á borgum hérna síðustu ár svo greinilega vilja allir fá nýtt nafn (Mumbai hét Bombay, Chennai hét Madras, Kolkata hét Calcutta osfr.). Það er svosem engum hnöppum um það að hneppa að Bangalore er ensk nýlendu-skrunstæling á upprunalega nafninu Bendakalooru. Ég verð samt að segja að það er ágætt að þeir tóku ekki upp það svakalega nafn aftur.
Nú fer að líða að því að ég fari að fá íbúðina mína afhenta. Ég á eftir að hitta húseigandann aftur í dag og fá indverkst te hjá henni. Maður verður að halda henni góðri því hún virðist geta gert allt fyrir mann og þekkja allt og alla, enda arkitekt. Virðist vera almennt arkitektar geti allt og þekki allt og alla! Ég þarf að fá hana til að hjálpa mér að finna góða þjónustufólkið. Kannski maður geti svo bara flutt inn um helgina ef maður er heppinn.

No comments:
Post a Comment