Sunday, October 01, 2006

Bréfaskólaklipping

Ég ákvað að fara í klippingu. Það var samt búið að hræða mig svo mikið með að fara í klippingu á Indlandi áður en ég lagði af stað að ég var smeykur. Sagt er að maður kæmi þá algjörlega til með að líta út eins og '79 útgáfa af Ronald Regan. En hann Ronald var nú alltaf hárprúður maður svo ég ákvað að í stað þess að líta út eins og dýrið í Fríða og Dýrið þá væri nú Ronald kosturinn betri. Ég skellti mér inn á hárgreiðslustofu sem í þessu landi er alltaf blanda af nuddstofu og andlegri hreinsun. Ég ákvað að ekki að fá mér andlega hreinsun fyrir klippinguna í þetta skiptið enda þyrfti ég örugglega miklu frekar á henni að halda eftir klippinguna eftir allar geðhræringarnar sem ég bjóst við að þurfa upplifa. Drengurinn sem byrjaði að klippa mig virtist nú bara hafa tekið verklega hlutann í bréfaskólaklippinámskeiðinu og tókst að láta mig líta út eins og persónu úr Latabæ á engum tíma. Eftir fjórar mínútur ákvað hann að ég væri fullklipptur. Með smá samningaviðræðum fékk ég hann til að halda áfram vinnunni sinni, láta ekki deigan síga og reyna að bjarga þessu. Eftir að ég var búin að segja honum hvar og hvernig hann ætti að halda á skærunum endaði ég með Bruce Willis, Die Hard klippingu. Maður getur ekki verið annað en sáttur við það enda getur maður ekki farið fram á mikið meira (þetta kostaði jú 20 sinnum minna en í Danmörku). Brúsi var nú líka alltaf mjög kúl.

Þó ég hafi ekki farið í eftirá andlega hreinsun eða nudd (þó svo að hann hafi eitthvað potað, smurt -Guð má vita hverju- í hárið og gufustraujað hausinn) þá má alveg skella sér aftur í klippingu.


Ég mætti í þýskt afmæli hjá Kristjan (Þjóðverju jú, sem vinnur hjá Bosch). Mér var boði í þetta ágætis afmæli með nokkrum af hans vinum. Ég komst að því að þó mín íbúð sé ágæt er ekkert er ekkert sem slær út að hafa 100 fm partísvalir uppi á sjöundu hæð. Þar var etið og skemmtun mikil haldin. Í tilefni að afmælinu og því að nú er að byrja hátíð ljóssins (ein af tugum hátíða sem haldin er á hverju ári í þessu landi) voru keyptar áramótagræjur: Hvellettur og annað sprengiefni undir nafni Aldolfs Hitlers. Greinilega fyrir Indverjum er Hitler ekkert sem maður má ekki markaðssetja (veit ekki hvort það myndi falla í góðan farveg í Evrópu) og þykir þeim þetta líklega bara sniðugt og að passi vel saman. Þjóðverjanum fannst þetta svo súrealískt að hann varð að kaupa þetta. Hitler var brenndur og skálað var fyrir.


Núna hlakka ég til að eyða kvöldinu heima fyrir framan sjónvarpið. Það er búið að vera allt of mikið að gera síðustu viku. Búin að hitta Aria (Íranska mótorhjólatöffarann). Búin að hitta Andreas og hans fjölskyldu (dani sem var að vinna með mér í Danmörku, var að flytja hingað í nokkrar vikur) og eyða með þeim kvöldinu. Búin að hitta Aria aftur og fara með honum í bæinn. Búin að hitta Toni (finni sem vinnur hjá Nokia) og fara með honum út að borða.

Á morgun er svo frídagur svo lagt verður í hann til Mysore, borg hérna 120 km frá Bangalore eldsnemma. Þar verða skoðuð musteri og hallir eins og enginn væri morgundagurinn!

Meira um það síðar.

3 comments:

Anonymous said...

Sæll Hannes, loksins fann ég bloggið þitt, sé að þú ert í ævintýraheimi Indíafarans, hlýtur að vera spennandi. Sjálfur er ég að hefja afmælisviku í skólanum, held upp á 25 ára afmælið. Þú skálar kannski fyrir gamla skólanum þínum 6. október.
Bestu kveðjur
Gutti frændi

Anonymous said...

Brill að fylgjast með ævintýrum þínum á Indlandi. Manni langar bara að fara að skoða flug :) Nóg er af svefnherbergjum hí hí. Kveðja frá gamla ævintýrasnauða boring old Íslandi, Mannstu þessu með umferðareglunum :)Kveðja Jóhanna, Logi
og ólátabelgirnir tveir.

Anonymous said...

Ja hérna hér. Og þú hélst að þér myndi leiðast. Svo það lítur út fyrir að ef maður kemur í heimsókn þá er maður bara á fullu í skemtibransanum með aryan og fær kannski aukahlutverk í bollywoodmynd. og svo allar þessar afmveislur og party og og og og....... hmmmheld að maður bara skelli sér. Góða skemmtun í bransanum