Verkafólkið
Magnað þetta með verkafólkið hérna. Í þessu landi er örugglega ekkert vinnueftirlit eða málþing pípara. Fjörutíu stunda vinnuvika og kaffipásur er sjálfsagt ekkert sem verðugt er að hafa áhyggjur af í samningum. Hér búa húsasmiðirnir í húsinu sem þeir eru að byggja og vinna allan sólahringinn, líklegast þó eingöngu meðan þeir eru vakandi. Ef húsið er ekki meira en grunnur búa þeir þá undir segldúk í grunninum. Það er kannski líka ákveðin gulrót fyrir þá að klára húsið sem fyrst svo þeir geti fengið þak yfir höfuðið meðan þeir sofa. Ég ætla að sjá hvernig gengur að nota verkafólkið í næstu viku þar sem ég er búin að panta tíma með smiði til að smíða fyrir mig djúpbassahátalarakassa. Að sjálfsögðu verður hann að vera flauelsklæddur!
Húsið sem hýsir skrifstofuna mína er enn verið að byggja. Þó svo við séum flutt inn á skrifstofuna eru fjórar hæðir ókláraðar svo þar sveimir allt af verkamönnum. Einum verkamanninum í síðustu viku þótti eflaust það þak sem honum var boðið á einum af ókláruðu hæðunum ekki vera nógu gott fyrir hann svo hann ákvað að taka sinn svefn á mjúkum skrifstofustól á skrifstofunni minni. Eitthvað hefur þó vekjaraklukkan hans verið biluð svo hann var enn sofandi þegar fólkið mætti í vinnuna daginn eftir sem kostaði náttúrulega hróp og köll. Maður þarf augljóslega að athuga hvað maður skilur eftir á skrifstofunni. Það gæti verið að eitthver verkamanninum þyki einum af óútkomnu Nokia farsímunum vera eitthvað sem gaman væri að taka heim með sér og jafnvel selja til Samsung.
Annars er loksins eitthvað að taka við sér í vinnunni minni. Hingað til hef ég verið að ydda blýanta og búa til kennsluefni. Það er að segja skapa hrein útgjöld fyrir Nokia. Nú gæti það farið að snúast við og við gætum farið að búa eitthvað til sem verðugt er að selja. Nú þarf að finna verkefni, búa til plön, taka undirmennina mína í viðtöl og reyna að útskýra verkefnin fjórum sinnum fyrir þeim. Hér þarf maður virkilega að anda djúpt og telja upp á tíu því indverjar tala nefnilega sína eigin útgáfu af ensku og hún hreint og beint gengur ekki alltaf upp með þá ensku sem ég kann. Maður þarf virkilega að orða hlutina á réttan hátt og breyta framburðinum sínum til að hann passi þeim. Það er rétt, eftir nokkra mánuði verður maður farinn að tala eins og Abu í The Simpsons.
Nú er líka mál að fara undirbúa sig undir frí. Þar sem maður er farinn að vinna harðar verður maður líka að fara meira í frí. Næsta fimmtudag verður farið til Kyrala í fjóra daga með Toni, Andreas og fjölsk. Sjáum til hvort við verðum með eitthvern stað að búa á. Það er víst búið að henda okkur út af hótelinu einu sinni, meira að segja áður en við erum mætt á staðinn.

No comments:
Post a Comment