Nágrannar
Jæja nú er Internetið loksins komið svo ég get kannski farið að setja inn eitthverjar fleiri myndir fyrir ykkur. Þetta sem átti að taka þrjá daga er búið að taka meira en tíu. Ég er augljóslega allt of linur í samningaviðræðunum því það virðist ekkert gerast nema maður rífi kjaft, sparki eða hóti að Pakistanar sendi sitt herlið inn. Eitthvað "óumsamið" er sama og tap og samningurinn þarf helst að vera skrifaður í fjórriti og stimplað af sænskum munki úr fjallshlíðum Himalaya.
Nú er líka nuddarinn búin að fá sína útrás á mér. Ég gat samt ekkert samið við hann þar sem hann talaði ekkert ensku. Þess vegna var ég örugglega barðinn í hakk eldsnemma svo ég lá næstum í kóma í bílnum á leiðinni í vinnuna. En þetta getur maður kennt sjálfum sér um og meira segja bað ég hann að mæta aftur í næstu viku.
En það er soldið magnað hvað maður hittir mikið af útlendingum hérna. Ég er nefnilega búin að hitta fimmta liðinn í útlendingakeðjunni. Það væri kannski mál að halda upp á það. Fimmti liðurinn var frá Suður Afríku og borði ég kvöldmat með henni og Angelie sem er Þýsk (hitti hana í afmælinu hans Kristjans) á mánudaginn. Fyrir ykkur sem vita ekki hvað fimmti liðurinn er þá þýðir það að það er ekki nema einn liður í að ég hitti Arafat eða Baldwin bræðurna. Það er vegna þess að fróðir menn segja að það er ekki nema sex liðir milli þín og allra hinna sem eru á lífi. Ég veit samt ekki hvort þessir fimm liðir sem ég hef fundið hjálpi mér eitthvað sérstaklega mikið til að hitta Baldwin töffarana. Kannski ætti ég að spyrja næst hvort hún þekki Mandela. Hann var nú alltaf snjall.
Ég borðaði náttúrulega á einum betri veitingastöðum í bænum með útsýni yfir alla borgina. Þar var etið og drukkið eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég komst síðan að því að ég greinilega bý í smábæ (bara sjö miljónir). Hún Angelia býr nefnilega í húsinu á móti mér. Magnað. Ég get núna hoppað þangað yfir í frottesloppnum og fengið lánað sykur og egg eins og góðum nágranna sæmir.

3 comments:
Oldest trick in the book, Can I borrow some sucker you know. En þrátt fyrir alla útskýringar þá fatta ég ekki alveg þetta með 5 liðinn...
Hafðu það gott og til lukku með netið
Ókei...ég skal þá útskýra. Fimmti liðurinn þýðir einfaldlega að hún er fimmta persónan sem kynnt er fyrir mér í röð. Þ.e. ég kynnist eitthverjum af eigin raun, sá hinn sami kynnir mér fyrir næsta o.s.fr. þangað til fimm liðir eru komnir. Sniðugt ekki satt!
Ég þarf að athuga hvort ég geti látið reyna á þetta klassíska trikk með sykurinn...
bíddu hver er þetta kvendi annars. Finnst þú ekki hafa neitt verið að hafa fyrir því að kynna okkur hana nánar. Þetta er nú eitthvað groggý
Post a Comment