Friday, October 06, 2006

Næturlífið

Ég skellti mér í heimsókn til aðalsins í Bangalore í kvöld.

Aria, Íranski mótorhjólatöffarinn sem ég hef nú minnst áður á, bauð mér að koma með sér á eitt fínasta hótel borgarinnar, Leela Palace, og horfa á tískusýningu. Nú fór að renna á mig tvær grímur þetta með tískusýningarnar því þetta er í þriðja sinn sem hann býður mér!

Ég hef nú ekki gefið mig mikið fyrir tískusýningar í gegnum árin en þar sem Aria er jú meðal annars karlkyns fyrirsæta (þið vitið, eins og Zoolander), þekkir allan aðalinn og gat komið okkur inn á gestalistann með opnum bar og ókeypis mat, þá ákvað ég nú að skella mér með honum enda hafði ég ekkert betra að gera á föstudagskvöldi. Ég verð nú að taka það fram, fyrir ykkur sem hugsið bara á einn hátt þegar kemur að karlkyns fyrirsætum, að ég veit það af eigin reynslu að Aria er ekki ofurseldur trompetleikari!

Þar var jú auðvitað mikið af fólkinu frá því ég brá mér síðast í heimsókn til aðalsins og að sjálfsögðu heilsaði ég upp á herra Armani og frú Prada. Þau báðu mig velkominn að vanda þrátt fyrir að ég væri lítið betur klæddur í þetta sinn. En ég held að ég viti það nú fyrir víst að þeim þykir ég mjög smart, enda vita allir að ekkert er flottara en að vera klæddur að evrópskum stíl. Ég reyndi samt ekkert að blanda mér of mikið inn í heim tískunar svo ég ákvað heldur að tala við Aria um hlutlausa hluti eins og ástandið í Íran, kjarnorkuáætlun þeirra og stöðu íslömsku ríkisstjórnarinnar.

Þar heilsaði ég líka upp á einn stærsti fatahönnuð Indlands. Mann sem klæddur var í búning Línu Langsokks og reyndi mikið við mig. Það nú víst hreinn sannleikur að ef maður vill vera karlkyns fatahönnuður og gera það gott verður maður að vera mjög "svegjanlegur". Hann var meira segja svo "svegjanlegur" þegar ég hrósaði honum fyrir landafræðikunnáttuna hans (allir Indverjar sem vita hvað höfuðstaður Íslands heitir fá hrós í boði hússins) að hann fannst að ég ætti að vera skrifaður á gestalista í nánustu framtíð á öllum sýningum hans. Ekki ónýtt að vera eftirsóttur inni hjá aðalinum. Veit samt ekki hversu langt inn ég ætti að þora fara :-)


Ég morgun er svo INXS tónleikar. Aðgangsmiðinn kominn í hús og búið að mæla mót við Martin og danina. Þá er bara að setja á sig legghlífarnar og svitabandið.

Á sunnudaginn ætla ég svo að hitta hana Angielie. Hún er frá Stuttgart og við ætlum að fá okkur bajer saman.

1 comment:

Anonymous said...

Heyrðu.. ertu bara að verða einn af celebs þarna. Vonandi er þetta fólk ekki jafn sjalló eins og fína fólkið hérna í Belfast. Mér td finnst svaka gaman að fara á tískusýningar. Mikið kampavín og fyndið fólk. Það sko verður fyndnara með kampavíninu. Bara fara alla leið Hannes..endar með að þú kemur í Séð og Heyrt á Íslandi. Þá ertu sko maður með celebmönnum. HEHEHEHEHEHEHEHEHEHe "Íslendingu í Bangalore meðal fræga fólksins" meðfylgjandi, mynd Hannes og Armani með kampavín