Sunday, October 15, 2006

Sjötti liðurinn og Clinton

Jæja nú er hluti húsganganna minna komin. Það sem átti að taka þrjá daga er búið að taka eina og hálfa viku. Maður getur kannski reynt að finna eitthvað gyllt hlutfall á milli þess tíma sem fólk segir og það sem gerist. Eins og er virðist hlutfallið liggja í fjórum sinnum.

Sófinn minn góði kom þó í vikunni svo ég get núna legið fyrir framan sjónvarpið í brúna flauelinu. Vandamálið við það er hinsvegar það að sjónvarpið sem ég ætlaði að liggja fyrir framan, hann Sammi ef þið munið eftir honum, virkar ekki. Sammi Samsung LCD, mætti líka, allt of seint eins og gerist og gengur með allt í þessu landi, bilaður svo það er ekki hægt að nota hann. Glæný græja... og ég sem var búin að koma mér svo vel fyrir í sófanum.

Viðgerðarmennirnir eru núna líka búnir að vera fjóra daga á leiðinni að skipta út sjónvarpinu mínu og eru ekki enn komnir. Þetta er löng leið fyrir höndum virðist vera. Það er víst alveg sama hvað maður æpir mikið í símann það virðist ekkert ganga hraðar. Ég þyrfti að fara á námskeið fyrir hryðjuverkamenn svo ég geti lært að hóta fólki. Á meðan þarf ég að húka og horfa á gamaldags sjónvarp. Haldiði að það sé ástand.



Ég sagði ykkur frá Joanne, frá Suður Afríku, sem ég hitti á mánudaginn. Ég reyndar hitti hana, Angelie (frá þýskalandi) og Anette (eitthver frá Indlandi) á fimmtudaginn líka og reyndum við að dansa salsa (ég komst þó brátt að þrátt fyrir að ég hafi farið á námskeið fyrir ári síðan þá er ég mjög lélegur í þessari íþróttagrein. Ég hefði þurft að æfa stífar). Joanne bauð mér og nokkrum af hennar vinum í heimsókn í gær og hitti ég þar sjötta liðinn sem var líka í heimsókn hjá henni (svona fyrir ykkur sem enn vitið ekki hvað þessir liðir þýða allir saman, þá telst það vera einn liður sú manneskja sem kynnir þér fyrir annari manneskju í röð, þ.e. að eitthver kynnir þér fyrir einum og sá hinn sami þér fyrir svo öðrum o.s.fr.) Ég var allur svo uppfullur af þessum liðapælingum, enda mikið nörd, ákvað ég að bera þetta upp fyrir þessu nýja fólki, svo voru Indverjar, og útskýrði fyrir þeim að tölfræðilega (nörd) gætu þeir komið mér í samband við, sem dæmi, Bill Clinton. Indverjinn sagði mér þá að hann þekkti jú Billann og hafði oft talað við hann meðan hann bjó í New York.

Hananú...sex liðir...þetta virkar semsagt!

Í kvöld er svo planlagt að borða kvöldverð á fínu veitingahúsi með Joanne, Durk (sem er þýskur og talar varla ensku...enda þýskur) og einum bandaríkjamanni sem vinnur með Joanne. Ég reyndar eyddi morgninum í morgun í lautarferð í einum garðinum hérna í Bangalore með þeim og borðaði ost og kex. Huggulegt.

No comments: