Tuesday, March 06, 2007

Sexhundruðsextíuogsex

Rokk og Ról og ekkert rugl. Ef við erum að tala um að fara á alvöru, og núna meina ég alvöru rokk tónleika þá er bara ein hljómsveit sem kemur til greina. Tónleikaumhverfið í Bangalore er núna búið að fara frá botneinkunn upp í hæstu einkun fáanlega. Toppinum er náð og héðan í frá er bara ein leið niður.

Auðvitað er ég að tala um Íslandsvininn Bruce Dickinson og hans lítt epísku hljómsveit IRON MAIDEN sem eru að fara spila í minni borg eftir tvær vikur. Að sjálfsögðu er búið að kaupa miða og nú er bara að fara hlaupa upp í hæðirnar eða "Run to the Hills" eins og Brúsi snilldarlega orðar það. Eins gott að maður er að fá nýjan djúpbassamagnara. Þessi sem ég er með núna kemur ekki til með að endast lengi þegar Iron Maiden er komin í spilið.

Svo þangað verður haldið með Martin og Iben allur svartklæddur. Það væri örugglega við hæfi að mæta á alsvarta mótorhjólinu mínu á staðinn líka með svört sólgleraugu. Fallegra yrði það ekki!

Talandi um að mæta á mótorhjólinu. Í dag er ég orðinn löglegur mótorhjólatöffari. Ég er ekki að meina þannig að ég sé búin að fá mér dreadlocks, göt í eyrun og tattóeríngu af erni á bakið en ég er meira að gefa til kynna að hingað til hef ég verið óprúttinn glæpamaður keyrandi um próflaus. Í dag eignaðist ég ökuskírteini á mótorhjól. Ég þurfti reyndar að mæta á staðinn í 14 sekúndna próf og sýna prófdómaranum hvernig á að gefa handarstefnumerki til vinstri og hægri. Fyrir sumum væri þetta kúnst, fyrir öðrum er þetta bara vitleysa...

Fyrir mér var þetta hið síðarnefnda!

Ég hef ekki ennþá áttað mig á því hvers vegna þetta gæti undir neinum kringumstæðum þóst vera lífsnauðsynleg kunnátta fyrir að mega aka ökutæki í þessu landi. En ég býst við því núna að ég hafi skírteini til að aka fíl og úlfalda. Það eru einmitt þau einu farartækin sem sem mér grunar að hafa ekki stefnuljós innbyggð. Ég ætti kannski að fara lesa smáa letrið á ökuskírteininu...

Félagarnir á lögreglustöðinni þóttu það samt við hæfi að ég fengi að bera ökuskírteini í þessu landi. Ég veit nú ekki hvort var góð ástæða fyrir því, hvort þeir séu vísvitandi að reyna losna við útlendinga í landinu eða kannski bara vissu þeir að ég gæti borgað! Að fá ökuskírteini kostar nefnilega gott betur en það sem það á að kosta í raunveruleikanum. Til að fá skírteini, hvort sem maður vilji fá það löglega eða ekki þá þarf maður, eins og ég hef svo oft sagt áður, að múta löggunni. Hinsvegar eru múturgreiðslan orðin svo fáguð starfsgrein að það eru bara ákveðnir einstaklingar sem fá að múta löggunni (líklegast þeir sem hafa skírteini til þessa verknaðs). En þetta er það sem maður kallar kallar starfsöryggi í lögreglustéttinni! Til þess að fá eitthvað gert þarf maður að fara til þar til gerðra "umboðsmanna". Þessir "umboðsmenn" eru þeir sem taka við peningum og segja þér hvar þú átt að skrifa og mæta og borga mútur til allra lögregumannana sem þarf að múta og sjá til þess að þú fáir það sem þig vantar. Þessir "umboðsmenn" eru orðnir svo rótgróinn hluti af kerfinu að ef mér dytti í hug, þó svo væri ekki nema í brotsekúndu að ég vildi komast hjá því að nota þessa "umboðsmenn" þá er það bókað mál að ég myndi sjálfkrafa um leið missa alla lífslöngun í órjúfanlegu svartholi bírókratíunnar.

Ekki vill maður lenda þar þegar Iron Maiden eru að koma og spila fyrir mig eftir tíu daga. Össs hvað það verður mikið rokk.

No comments: