Monday, March 19, 2007

Go India Go!

Eddie mætti, sá og sigraði. Fólkið trylltist og féll í trans. Brúsi hressi klifraði upp í rjáfur sviðsins til að deila með okkur númeri skrímslisins. Allt kjaft fullt af fólk. Fleiri miðar seldir en var leyfilegt. Allt eins og það átti að vera. Strákarnir í Iron Maiden kunna þetta ennþá.


Nú í dag er frídagur. Það er meira að segja nýjársdagur. Veit ekki hvaða ár er samt, vonandi ekki 1984 því ég er ekki alveg á þeim buxunum að fara kaupa mér bleikan glansgalla, svitaband og drekka Sínalkó. Reyndar er svo mikill frídagur að ég hef ákveðið ekki að fara út úr húsi í allan dag. Það er hvort sem ekkert merkilegt að gerast úti (hefur mér fyllilega tekist að sannfæra sjálfan mig um) annað en að 36 stiga hitinn er að baka allt. Nú stripplast ég um á stuttbuxum og stuttermabol, borða pizzu, horfi á The Simpsons og gera allt það sem á að gera þegar maður hefur ekkert betra að gera en að gera ekki neitt. Það er lífið, engin spurning! Nú nýt þess til hins ítrasta að hanga heima.

Það er annað en þessir blessaðir Indverjar. Þeir vita ekkert hvað þeir eiga að gera þegar þeir eiga frí. Einn gaurinn í vinnunni sagði mér í síðustu viku að hann myndi nú bara kíkja á þetta tölvuprógram um helgina, myndi bara koma við á sunnudaginn. Ég verð að segja að þó ég sjái evrurnar streyma inn í kassa Nokia og launin mín rjúka upp við fórnfýsi starfsmanna sem þessa þá stóð mér nú samt ekki á sama en að gefa smá ummæli um þessi ráð hans. Ég spurði hann nú hvort hann ætti ekki eitthvað betra að gera á sunnudegi en að eyða honum í vinnunni, ekki það að hann fengi eitthvað sérstaklega borgað fyrir það hvort sem er (ég verð að biðja alla þá sem lesa þetta og hafa eitthver tengst við Nokia að láta vera að þýða þessi ummæli yfir á aðrar tungur). Þessi Indverji skildi bara ekkert hvað ég væri að fara með þessu blaðri mínu, hann hefði hvort sem er ekkert að gera á sunnudaginn!

Hér kemur útdráttur úr spurningalistanum sem fylgdi eftir:
Fjölskylda? Jú, en konan er heima.
Áhugamál? Ha?!
Krikket þá? Já, en krikketleikirnir eru allir sýndir á næturna.
Vinir? Jú, en þeir eru örugglega líka í vinnunni á sunnudegi.

Það er nefnilega það! Fyrir mér er helgar-"frí" það að mæta ekki í vinnuna! Ég verð nú reyndar að viðurkenna að ég hef aldrei tekið þátt í brjálæðinu sem viðgengst á Íslandi svo ég gæti verið að ég hafi engan skylning á þessu. Hinsvegar verð ég bara að gleðjast yfir því að það eru ekki allir sem hugsa eins og ég!


Það sem kemur mér þó mest á óvart er að þetta spyr ég á miðju heimsmeistaramóti í krikket. Hér er ekkert talað um annað. Hvað mikið Rahul skoraði, hvað Mahendra hljóp mikið, hvað Suresh sló fast, hvað Sachin drakk mikið te í leikhlé eða hvað Mohammed var í hvítum sokkum. Já, krikket er málið. Ég hef ekki ennþá náð markmiðinu með þessum fíflalátum á miðri grasflötinni. Ég mætti heim til Trent hins ástralska í gær og reyndi að fá hann til að útskýra fyrir mér hvað mennirnir væru að gera þarna í hvítum golfgalla borandi í nefið á miðjum vellinum. Eftir hálftíma útskýringu var ég minna nær hvað gekk á annað en líklegast væri leikurinn hálfnaður, búin að standa yfir í þrjá daga og mennirnir væru að fara í tepásu. Ég reikna með því að ég hafi annað hvort fengið mjög lélega útskýringu (enda drakk Trent nokkra Kúba-Líbra á meðan útskýringum stóð) eða þá ég sé tregur með eindæmum. Ég hallast soldið að þessu síðarnefnda því Trent jú er fagmaður þegar kemur bæði að krikket og Kúba-Líbra.

Reyndar eina sem ég þarf að læra er bara að segja "Go India Go!" þegar Indverjar leika við Pakistan!

No comments: