Saturday, December 23, 2006

Stóðhesturinn og kuldinn

Það er nú aldeilis fínt núna, maður getur skrifað bloggið sitt úr margra kílómetra hæð án þess að hafa nokkuð fyrir því. Nei, ég er ekki byrjaður í fallhlífastökki eða farinn að byrjaður að klífa Himalaya (ég myndi sjálfsagt bara kaupa mér þyrlufarið upp í Everest í staðinn ef ég vildi segja að ég hafi komið þangað). Nei, ég hef nú tileinkað mér þessa nýmóðins tækni að skrifa blogg úr flugvél.


Þá er maður búin að drekka og borða Danmörku eins og hún leggur sig. Fjórir dagar í landi Carlsberg og Hapsdog. Eftir þetta er maður alveg búin að gleyma öllu sem heitir grænmeti. Einmitt það var sogið úr manni nokkrum mínútum eftir að maður lenti í skinkulandinu og evrópskum próteinunum hreint og klárt raðað í sig eins og þau koma af kúnni (og svíninu ef við förum út í þá sálmana). Náði að borða mína Itzy Bitzy pítsu á Søndre Boulevard, kebab á Istedgade og síðast en ekki síst Hapsdog á Hovedbanen. Indverjar geta ekki búið til svona glæsilegar kræsingar. Þeir eru of uppteknir við að búa til eitthvað grænmetissull í potti.

Í Danmörku er fleira sem er líka gott. Í Danmörku getur maður nefnilega hjólað. Á Indlandi myndi maður bara einfaldlega deyja undir bíl ef maður reyndi að fara um á reiðhjóli. Einmitt þess vegna er ég búin að kaupa mér mótorhjól. Mótorhjólið sem kemur til með að bíða eftir mér galvaskt þegar ég kem heim til baka til Indlands, ný stillt og bónað. Bílstjórinn minn fær að klappa því og pússa blöndunginn meðan ég þjálfa upp maraþonátið og drykkjuna um jólin. Myndirnar af stóðhestinum eru nú komnar inn á myndaalbúmið!

Ég er samt náttúrulega orðinn svo mikill eymingi samt að ég þurfti að gera fyrstu reiðhjólaferðina mína í fjórtán stiga hita út í búð til að kaupa trefil og vetlinga. Já, það er víst kalt í Danmörku!

Svo núna er stefnan tekin í norðrið. Ekki það að maður sé búin að fá sæmilegan skammt af kulda en eftir nokkra daga í íslensku brjáluðu veðri þá getur maður bara hreykið sér og sagt: “Þetta er ekki neitt. Það var einu sinni svo kalt á Íslandi að ferðaskrifstofur auglýstu sólalandaferðir til Danmerkur” (svona getur maður verið sniðugur). Já, Ísland bíður upp á mann með brjáluðu veðri, piparkökum og konfekti.



En núna eru að koma jól. Indland verður svo vel mælt aftur á nýju ári.

Lifið heil!

No comments: