Tuesday, September 26, 2006

Tollarar

Í dag fékk ég mér meira þjónustufólk. Það er ekki nóg að maður sé bara með einn þjón, heldur verður maður jú að vera með fjóra. Einn sem sér um bílinn, einn sem þrífur, þvær og bónar heimilið, einn sem sér um garðinn og vökvar og einn sem eldar kvöldmat. Ég á eftir að hitta þvottakonuna og semja um kaup og kjör við hana í kvöld. Ætli maður splæsi ekki í 1400 kall handa henni á mánuði. Hún setti það samt sem skilyrði að hún fengi að þvo fötin mín í höndunum. Hún er á móti svona nýmóðins tækjum eins og þvottavélum og þurkurum. Ég samþykkti það! Síðan sendir hún fötin mín í strau þjónustu þar sem notuð eru alvöru kolahituð straujárn. Það eru sko alveg alvöru straujárn…og að auki er hægt að nota það í rafmagnsleysinu!

Ég er einmitt núna búin að upplifa slæmu hliðarnar á rafmagnsleysinu. Rafmagnsleysi þýðir ekki exótískar upplifanir, huggulegheit og kertaljós eins og á Íslandi eða í Danmörku. Rafmagnið hér slær út í þessari borg mörgum sinnum á dag og er úti í mislangan tíma í hvert sinn. Það vantar greinilega aðeins minna gert úr því að halda kjarnorkuverunum í gangi hérna eða þá að eitthverjar beljur bíta meira í sundur eitthverjar háspennukapla en gerist og gengur þaðan sem ég kem. Sem betur fer eru allar "betri" íbúðir með rafal tengdan við rafmagnskerfið.

Vandamálið við rafalinn þar sem ég á heima er að hann slær ekki inn fyrr en rafmagnið er farið. Þannig að hann er ekki að birgja brunninn fyrr en eftir að Binni er dottinn í það. Að reyna að horfa á DVD eða hlusta á geisladiska er bara vonlaust þar sem diskurinn manns fer alltaf á byrjun þegar rafmagnið fer af. Já, kannski finnst ykkur þetta bara mjög ómerkilegt. Prófiði bara að taka DVD spilarann ykkar úr sambandi á 10 mínútna fresti og reynið svo að spóla fram að því sem þið voru komin í hvert sinn…já, einmitt…Ég ætla að fara og kaupa mér UPS fyrir spilarann minn í vikunni (svona fyrir ykkur svala fólkið þá er UPS svona stór hleðslurafhlaða sem heldur rafmagninu í gangi í nokkrar mínútur ef það slær út).

Allavega kom geislaspilarinn minn og restin af dótinu mínu í gær. Þeim tókst samt auðvitað að týna því á leiðinni. Þetta er jú löng leið í flugi og auðvelt að villast um háloftin. Þeir fundu það samt á endanum eftir 26 daga en átti upphaflega að taka 5.

Ég var sendur í tollvörugeymsluna í gær til að ná í dótið. Ég komst að því enn of aftur að tollur og tollarar eru vélabrögð djöfulsins. Ég er svosem búin að komast að því fyrir löngu síðan í gegnum árin, í öllum þeim löndum sem ég hef búið í. Maður sleppur ekki lengur til Íslands án þess að verða sendur í ristilspeglun, allt gegnumlýst og spurður hvar maður hafi fengið þetta ryk á töskunni og hvort ég sé ekki örugglega að reyna smyggla því. Það skiptir heldur engu máli að maður búi ekki einu sinni í landinu.

Tollarar eru illir.

Ég var keyrður inn í tollvörugeymsluna þar sem vopnaðir verðir með vélbyssur gættu þess að maður væri með miða með nafninu sínu á (augljóslega enn eitt dæmið um góða atvinnusköpun). Síðan var mér vísað inn í lokað herbergi með skrifborði og skrifborðsljósi. Dæmigert eins og maður væri að fara í þriðju gráðu yfirheyrslu hjá uppreisnamönnum í Líbýu (ég hef samt aldrei farið í þriðju gráðu yfirheyrslu hjá uppreisnamönnum í Líbýu en ég sá það samt í bíómynd einu sinni). Þar mætti tollarinn á staðinn og sagðist vera yfir öllu batteríinu. Hann byrjaði að tala voðalega mikið um sig og sína fjölskyldu, ástandið á Indlandi og spillinguna á sjúkrahúsum. Ég hélt áfram að vera jafn fullkomlega týndur í því hvað í óskupunum ég var að gera þarna. Síðan bað hann endilega um nafnspjaldið mitt og spurði hvort hann mætti senda umsóknir og einkunnaferil fyrir frænkur sínar og frændur til mín þar sem þau voru að útskrifast úr tölvunarfræði og vantaði vinnu, þá helst hjá Nokia!

AHA…ég komst mjög snögglega að því afhverju ég sat þarna!

Ég sagði að það væri svosem í lagi að hann sendi þetta drasl til mín og krossaði fingur yfir því að það myndi hjálpa dótinu mínu yfir í mínar hendur. Að sjálfsögðu fékk ég ekkert dót því þeir höfðu jú týnt því aftur en mér var lofað að því yrði keyrt til mín. Ég kippi mér nú lítið upp yfir að eitthvað sé að týnast eða dragast í pósti enda er ég búin að upplifa "bestu póstþjónustu í Evrópu", Post-Danmark. Enginn pakki kom á réttum tíma eða var á réttum stað með því kompaníi svo ég geri bara ráð fyrir að það sé eitthver óþekkt kosmísk skipulagshola í póstþjónustu í heiminum.

Dótið er samt komið og græjurnar eru farnar að hljóma. Nú vantar mig bara djúpbassahátalara svo ég geti farið vera góður nágranni og leyft öðrum að hlusta með mér.

2 comments:

Anonymous said...

Já það eru orð að sönnu að tollarar eru skrýtinn kynstofn!
En til hamingju með íbúðina, græjurnar og alla þjónana. Vonandi nærðu að koma þér vel fyrir þarna.

Anonymous said...
This comment has been removed by a blog administrator.