Sunday, September 17, 2006

Ríki kallinn

Maður verður að rækta ættjarðartengslin. Hvernig skyldi vera besta leiðin til þess?

Jú, maður mætir í íslenska grillveislu.

Mér var nefnilega boðið í heimsókn til Jóns og Binnu í gær. Þau eru jú fólkið sem ég hitti um síðustu helgi og eru eina íslenska fólkið fyrir utan mig sem búa í Bangalore. Þau voru búin að ákveða að skella nokkrum heilögum nautasteikum á grillið og buðu mér að koma. Þetta var vel huggulegt boð með Nóa-Síríus súkkulaði á boðstólnum (usss...verður ekkert íslenskara). Þar náði ég að tala út í eitt enda er það ekki á hverjum degi sem maður fær að mæla sitt móðurmál. Ég reyndi að nota eins mikið af orðum með þorni og ufsilon í-i til að vera soldið þjóðlegri.

Svo til að auka öll hin þjóðlegheitin hitti ég Danina mína og einn Þjóðverja í brunch á Leela Palace í morgun. Leela er flottasta hótelið í Bangalore með risa stórt hádegisverðarhlaðborð. Við ákváðum að vera flott á því og háma í okkur mat frá öllum heimshornum. Sushi-ið kom sterkt inn. Við Martin sáum samt að það væri kannski mál málanna að kaupa okkur farseðil til Tokyo yfir eina helgi. Okkur finnst það nefnilega svo flott að geta sagt það í vinnunni vikunni á eftir þegar eitthver spyrði hvað við hefðum gert yfir helgina: "Tjah...okkur strákunum langaði svo mikið í sushi að við skelltum okkur bara til Tokyo. Það er nú hvergi annarstaðar hægt að fá þetta almennilegt...".

Svona getur maður leikið ríka kallinn í útlöndum.

3 comments:

Anonymous said...

Það þýðist þér þarlendur lýður þar eð þú lýstur menn með ýli miklu. Þetta var bara svona til að auka á þ og ý forðan þinn ef á þarf að halda. Reyndar stæði ég vel af vígi þarna því ég get sett hvaða stafi sem er inn í orðin. Kostur að vera lélegur í stafsetningu. Ef ekki er hægt að sláum sig þar sem Jón bæjó væri talin ríkur, hvenær þá?
Gangi þér vel í Tokýó.
Þröstur

Anonymous said...

Mér fer að sakna myndir af frænkarnar mina.
Skórdyra faraldurin er hægt að bjarga með elektróstatískan flugnadrepar þú skipta bara uv peruna út með putta af þér. Þegar fysti kvikindið er komið í gildran þá veit þú hvað skepna það er. Þar á eftir getur þú endurheimtað puttan með því að éta grillaða skórdyrakvikidið. Ekki vera svona ráðalaus samt þú ert búin að fá þjón, bilstjóra og ræstingafolk.

Anonymous said...
This comment has been removed by a blog administrator.