Wednesday, September 20, 2006

Heilög blessun

Nú allt fallið í ljúfa löð í vinnunni. Eiginlega er allt fallið í svo ljúfa löð að það er eiginlega bara allt dautt. Rafmagnið dautt, Internetið hálfdautt og allir þeir sem ég vinn með auk yfirmannana eru farnir til Kaupmannahafnar í þriggja vikna þjálfunarbúðir (þeir eru samt ekki dauðir eftir því sem ég best veit). Það er kannski ráð að reyna vinna eitthvað af alvöru meðan maður hefur tækifæri til. Leggja kapal, spila Tetris og svoleiðis.

Annars eru við að fara flytja í vinnunni. Ég er búin að komast að því að Indverjar eru lítið að stressa sig yfir tímaplönum og öðrum líkum smáatriðum. Nokia var að byggja skrifstofu fyrir 1500 manns sem átti að vera tilbúin í júlí og búið að seinka fjórum sinnum. Soldið í anda danska verkamannabransanns! En núna virðist vera að eitthvað sé að gerast og öllum starfsmönnunum var tilkynnt að von bráðar verði vakin heilög blessun á þessa byggingu. Það er víst eitthvað sem tekur 12 tíma og öllum starfsmönnum boðið að koma. Ég vona að starfsmennirnir fái líka sinn skerf að heilagri blessun, maður er jú orðinn soldið óblessaður nú til dags. Alveg eins og bíllinn minn er sendur í heilaga blessun á hverju ári. Svona svipað og bílar í norður Evrópu eru sendir í skoðun.

Ég brá mér í nýtt kvikmyndahús í gær. Ekkert merkilegt um það að segja annað en það að það er langt síðan ég hef farið á jafn lélega mynd í jafn fínu kvikmyndahúsi. Myndin fyrir valinu var sú stórmerka Miami Vice þar sem tveir súkkulaðiparkisonsjúklingar hlaupa um og bera fram djúpar innihaldsríkar röksemdarfærslur eins og "you cannot negotiate with gravity". Höfundar myndarinnar hafa pottþétt haft tvöhundruðastaogfjórða þátt af Baywatch sem fyrirmynd hvað varðar söguþráð, uppbyggingu og innihald. Hasselhoff ætti að vera stoltur.

Samt er ég er ekki búin að gleyma hvers vegna ég fór á þessa mynd. Svona myndir krefjast skylduáhorfar. Ekki meira um það að segja. Sem betur fer fór ég með þeim Victoriu, Iben og Kristian (þjóðverji sem er búin að bjóða mér í afmælisveislu í næstu viku) svo við gátum hlegið saman yfir dramatísku atriðunum.

Úff, næst fer ég á indverska mynd...

1 comment:

Anonymous said...

Exskjúsmí....... Mæja Væsa. Er eitthvað að þér? Veit svo sem ekki hvort maður eigi að vera stoltur af þér að vera farin að horfa á svona myndir eða hvort það eigi að kreista fram tár. I þessu tilfelli...Held að það væri minna sárt að skjóta sig í fótinn eða í hnéð eins og þeir gera í Belfast. Hlaut að vera að það voru stelpur með í spilinu og þú hefur ekki þorað að segja nei við þessar sætu blondínur..... Vona að heyra ekki svona vittleisu aftur....