Fluttur...aftur
Jæja. Þá er maður kominn í nýja íbúð, loksins sloppinn úr pöddubælinu og vel sáttur. Meira segja svo sáttur að ég ákvað að eyða laugardagskvöldi heima hjá mér og horfa á sjónvarpið og njóta nýju íbúðarinnar. Ég verð samt að segja að ég er búin að vera voðalega duglegur í dag og keyra um bæinn (ekki ég samt, bílstjórinn) og heimsækja verslanir. Ég er búin að komast að því að það er allt of mikið af búðum í Bangalore. Manni svimar að hugsa um það og langar að leggja sig.
Þannig að ég er búin að eyða öllum deginum í að leita uppi fleiri húsgögn enda ekki vanþörf á. Það er ekki nema sæti fyrir 41 mann í íbúðinni. Það er rétt nóg fyrir lítið kvikmyndahús.
Ég ætla nú samt að reyna losna við eitthvað af húsgögnunum svo ég geti komið nýja flauelssófanum sem ég var að skoða fyrir. Já, flauel maður, þýðir ekkert annað. Ég er nú samt meiri leðurmaður en leður er erfiðara að fá í þessu landi enda má víst ekki flá þessar blessuðu beljur.
Síðan ætti ég líka að fá nýja dýnu í rúmmið mitt. Indverjar eru svo miklir harðhausar að þeir kjósa nefnilega að sofa á dýnu gerða úr múrsteinum. Ég var búin að fara í gegnum allan sölulistann í búðinni og gera mig að skemmtikrafti við að leggjast á gólfið í búðinni aftur og aftur til að finna eitthvað nógu mjúkt til að vera inni á skala sem maður þekkir í norður Evrópu. Ég er svo mjúkur (mjúki maðurinn) að ég verð að hafa eitthvað mjúkt undir mér!
Og síðast en ekki síst, maður er nú ekki tækjabrjálaður fyrir ekki neitt svo fann komandi heimilsvininn minn, hann Samsung. Hann Sammi, eins og ég hef ákveðið að kalla hann, er 40 tommu LCD hæ-deff. Ég veit...úúúú....
Síðan þarf ég að fara og reyna fá þessi innkaup mín samþykkt og senda síðan eitthvern út af örkinni til að kaupa þetta. Vona að þetta komi sem fyrst. Dótið mitt frá Danmörku á að koma á mánudaginn svo ég er strax farinn að hlakka til að heyra tónlist í almennilegum græjum þegar maður leyfir sér að eyða tíma heima hjá sér.
Ég set inn myndir af -mi casa- þegar ég er kominn með internet tengingu...la semana próxima.

1 comment:
Gott að þú ert komin í góða íbúð
Til hamingju með það, hlakka til að sjá myndir
Post a Comment