Saturday, September 09, 2006

Boðflenna

Í gær sat ég á skrifstofunni og hlusta á þessar fínu bænir í moskunni við hliðná. Þeir eru svo myndalegir þar að þeir leyfa mér að njóta bænanna með sér með því að stilla gjallarhornin beint á bygginguna mína.

Í gær hitti ég líka og slatta af Dönum sem búa hérna og eru tengdir verslunarskrifstofu danska utanríkisráðuneytisins. Ég ætlaði nú bara að hitta hann Martin, strákinn sem ég hitti á miðvikudaginn og vinnur fyrir DSV (danskt flutningafyrirtæki). Ég mæti þar eins og fín boðflenna inn í þetta fína matarboð í boði verslunarskrifstofunnar sem ég vissi ekkert um. Sem betur fer var mér vel tekið enda áttuðu þeir fljótlega sig á því hversu munaðarlaus ég er í þessari borg. Þó Íslendingar séu út um allt þá eru Danir jú 15 sinnum fleiri en Íslendingar og ekkert minna út um allt. Þar át ég og drakk í boði danska ríkisins! Loksins fæ ég eitthvað til baka eftir alla þessa skatta mína...

Talandi um Íslendinga út um allt. Ég ákvað að bregða mér aldrei þessu vant á veraldarvefinn og athuga hvort ég finndi eitthverja Íslendinga sem byggju í Bangalore. Ég fann nú reyndar bara einn doktor og dírektör sem vinnur hjá Actavis og sendi honum póst. Við ákváðum að fá okkur sunnudagsbrunch á morgun saman.

Nú er ég búin að fara á milli allra þeirra staða sem ég ætlaði að fara á til að finna mér húsnæði. Ég er búin að þræða hverja villuna á fætur annari og segja: "vá hvað þetta er flott en...njaa..þetta er kannski soldið stórt". Ég held ég sé búin nokkurnvegin að ákveða hvað ég ætla að taka og það er jú minnsta íbúðin sem ég er búin að skoða, u.þ.b. 220 fm! Hún hefur líka þrjú baðherbergi. Ekki slæmt það þar sem maður er jú sjálfur 3 lítra maður :-)

Hún er um 4 km frá miðbænum og um 10 km frá vinnunni minni. Ekki það að það segi nokkurn hlut um neitt eins og umferðin er hérna. Maður býr alltaf langt frá öllu.

Jæja, ég ætla að fara út og reyna taka eitthverjar myndir fyrir ykkur.


P.S. Já, svona ykkur að segja. Ég var nú búin að ákveða að fara með Ketil hinum norska út úr bænum um helgina en við urðum að fresta því þar sem Ketil er nýfluttur og þarf að nota helgina í að koma sér fyrir. Við finnum eitthvern betri tíma fyrir þetta.

P.P.S. Þið megið líka vera dugleg að kommenta. Ég þarf að hafa eitthverja ástæðu til að hringja ekki í ykkur öll!

4 comments:

Anonymous said...

Þú ert ótrúlega fljótur að koma þér inn í Evrópska yfirstéttarlífið þarna, ánægður með þig. Hvað ætlarðu að fá þér marga þjóna ;)

Anonymous said...

Þú þarft að fara senda myndir það er gott að þér leiðist ekki við fylgjumst spennt með

Anonymous said...

http://www.apple.com/trailers/fox/borat/trailerg/

Anonymous said...

Það er gott að þú ert laus úr þessum norðurlanda morgunverðum kornflex og súrmjólk hvað? Alvuru steik í morgunmat það er lífið