Afmælisveisla
Haldiði nú að það sé ekki. Við Íslendingar erum alltaf stærstir. Ég brá mér í eina af mörgun verslunarmiðstöðum í gær og brá mér inn í plötubúð. Ekki mikið hægt að hrósa plötubúðum hérna í landinu þar sem 95% af efninu sem selt er er Bollywood tónlist. En inni á milli alls þessa dans, söngs og tómlausrar gleði lá fremst nýr íslenskur diskur með álfahljómsveitinni Sigur Rós! Já, ég uppfylltist af þjóðarstolti á staðnum og byrjaði að leita af tónlist frá öðrum norðurlöndum til að sanna það að íslendingar séu lang bestir. Auðvitað fann ég ekkert annað af erlendu nema diska með ZZ top og Elvis og þá lá við að maður byrjaði að þylja íslenska þjóðsönginn í falsettu.
Ég ákvað þar að kaupa þennan forláta disk og gefa honum Martin í afmælisgjöf. Hann átti jú einmitt afmæli í gær og bauð mér, Iben, Viktoríu og Sune (yfirmaður stelpnanna og gaurinn sem hélt dönsku veisluna á föstudaginn) út að borða í gærkvöldi. Hann var sáttur með gjöfina enda mjög táknræn! Kvöldinu og nóttinni eyddum við svo í að rífast við hótelstarfsfólkið í móttökunni þar sem Martin býr og reynandi að brjótast inn á þakið. Sem sagt alvöru veisla.
Talandi um tónlist. Þann 7. október kemur hin stórmerka níundaáratugarhljómsveitin INXS og spilar í Bangalore. Já, kannski finnst fólki það bara ekkert merkilegt þó eitthverjir ástralskir popparar stigi á svið á Indlandi en það er það nú bara samt. Rokk/popp tónleikar er bara ekkert daglegt brauð hérna megin á hnettinum svo maður má bara alveg sleppa því að vera kresinn og þiggja það sem manni er rétt. Ekki það að ég tali eitthvað illa um INXS, þeir eru ágætir með fiski og kartöflum þó svo að forustustauðurinn sé dauður og útskiptur með eitthverri raunveruleikasjónvarpspoppstjörnu. Öll plön benda á það að þessir kátu kappar verða barðir augum ef við finnum eitthvern stað þar sem hægt er að kaupa miða því þrátt fyrir allt þá þykja Indverjum þetta mjög ómerkilegt og eru ekkert að tapa sér í auglýsingum.
Já, það er greinilega hægt að finna allt hérna. Kannski maður finni næst Síríussúkkulaði og matarkex frá Frón.

2 comments:
Gott að Martin var ánægður með íslensku afmælisgjöfina! En hvað er komið yfir þig að vera að rífast við hótelstarfsmenn og reyna að brjótast út á þak. Þetta kallar á nánari útskýringar...
Það verður fróðlegt að sjá INSX á sviði. Kannski Magni komi og syngi fyrir þig á næsta ári. Þú ert kannski að missa af Rock Star æðinu?
Ég verð að hafa það í huga að það eru konur og börn sem lesa þetta blogg :)
Annars voru við Martin að reyna að komast upp á þak á hótelinu. Ástæðan er ekki mjög skýr en allavega bannaði hótelstjórinn okkur það svo við reyndum hvað við gátum þangað til við vorum gómaðir. Við fórum þá bara inn á herbergi og pöntuðum samlokur...
Ég hef aðeins reynt að fylgjast með þessu Rock Star. Magnaður þessi Magni. Hann er meira að segja í Indverska sjónvarpinu.
Post a Comment