Monday, February 05, 2007

Útgöngubann

Nú er útgöngubann.

Mér er skipað að halda mig heima í kvöld. Nú virðast líka óeirðir, brenndir strætisvagnar og brotnar rúður vera vikulegur viðburður. Það virðist líka vera alveg fullorðins óeirðir núna þar sem skrifstofunni minni var lokað eftir hádegi og ég get sagt það eins heiðarlega að það er eitthvað sem Nokia gerir ekki bara í gamni. Reyndar getur verið að þeir hafi verið eitthvað hræddir við að ef þessir 600 starfsmenn færu ekki heim til sín eins og skot og læstu hurðinni á eftir sér þá gæti verið að þeir myndu bara ekkert mæta meir í vinnuna...eða meir í nokkuð annað. Það virðist líka vera bara að borgin hafi bara lokað. Engin líkamsrækt í dag, engar heimsóknir, engin kjörbúð...uss.

Ég var fastur í vinnunni í klukkutíma og komst ekki heim. Ég hafði hreinlega sent bílstjórann minn út í opin dauðann í morgun án þess að vita af því til að kaupa lestarmiða fyrir mig í hinum enda bæjarins. Bílstjóranum hefur samt örugglega þótt þetta heldur djörf ferð (án þess að mikið að vera kveinka sér) og ákvað því að hlífa bílnum mínum við rispum svo hann ákvað heldur að taka almenningssamgöngur í þessa ferð út á ystu víglínu. Það kostaði náttúrulega að hann komst ekkert að ná í mig þegar ég hrópaði neiðarópið...hann var jú hinumegin í bænum, líklegast málaður í framan með pálmablöð á höfðinu skríðandi bakvið lestarstöðina hendandi Molotov-kokteilum á lýðinn meðan hann borgaði fyrir lestarmiðana.

Bílstjórinn minn er jú fórnfýsin uppmáluð :)

Ástæðan fyrir þessu öllu saman er...vatn! Ríkisstjórnin á Indlandi var að ákveða í dag hvernig vatnsuppsprettunum á suður Indlandi ætti að skiptast á milli fylkja. Hér sjá þeir enga ástæðu fyrir því að ákveðið út frá hausatölu hversu margir rúmmetrar fara hvert heldur fer vatnið þangað sem mestu líkurnar eru á að ríkisstjórnin fær mestan stuðning! Þetta kom allt saman mjög illa út fyrir Karnataka, fylkið mitt sem missti eitthverjar zilljónir lítra, en vel út fyrir Tamil Nadu, nágrannafylkið. Þá verður fólk alveg vel brjálað hérna, kastar grjóti og brennir strætisvagna. Það er eins gott að það sé nóg af strætisvögnum á lager hérna. Reyndar þar sem þeir eru á annað borð byrjaðir að brenna elta þeir uppi allt sem hefur Tamil Nadu númeraplötur og brenna það í leiðinni.

Ég ákvað að láta mig og mótorhjólið mitt sem hefur númeraplötuna "Tamil Nadu 10 D 401" bara standa heima í dag!

No comments: