Friday, February 23, 2007

Farsíma fyrir heróín

Hjá þessari sjoppu sem ég vinn í er ekki alveg allt með feldu. Ekki það að ég hafi efni á að kvarta mikið yfir þessu kompaníi sem veltir meira en meðal heimsálfa og er svo myndarlegt að borga mér laun en í deildinni minni virka hlutirnir bara eins vel og ríkistjórn Fílabeinstrandarinnar. Jú, nýtt dót eru það sem almúginn vill, tekjur er það sem kompaníið vill og laun er það sem ég vill. Til að uppfylla þessi fábrotnu skilyrði þarf maður að búa til farsíma. Til að búa til farsíma þarf maður dót og græjur. Hér vantar dót og græjur og, eins gaman og er nú að segja frá því, hafa ekki verið frá því ég byrjaði.

Ég var núna að komast að því afhverju það eru engar græjur. Jú, indverski tollurinn er viðriðinn og sannast enn of aftur eins og ég hef svo oft bent á í gegnum mína tíð að tollur er það sem rennur undan rifjum djöfulsins. Reyndar er líka annar sem er viðriðinn málið: Bókarinn. Veit ekki hvernig tengin bókara er við djöfulinn en hann veit samt oft undarlega meira en eðlilegt er. Málið er að okkar bókari í kóma eftir bílveltu fyrir tveimur mánuðum. Og viti menn, greinilega hefur hann verið með öll reikningsfrumritin fyrir græjurnar með sér límd á framrúðuna þegar bíllinn valt (kannski var það ástæðan fyrir veltunni, veit ekki) því þau finnast hvergi. Að sjálfsögðu vill svo djöflastofnunin ekki sjá að leysa dótið út ef maður er ekki með frumritin. Afrit eru greinilega guðsgjöf. Þegar svona smákompaní eins og Nokia má ekki fjármagna spillinguna í landinu þá verður draslið bara þarna um óákveðinn tíma og við grátum hvern 1000 evra seðil sem við týnum hvern dag út af þessu.

Ég reyni bara að slaka á og halda gaurunum mínum í góðu formi til að vinna alla slagi um þessi fáu tæki sem við erum með. Reyndar í dag grunuðu gaurarnir að ég myndi beita öllum ráðum til að halda fólkinu mínu slöku þegar ég kæruleysislega spurði þá hvar hægt væri að fá púðursykur í þessu landi. Þeir horfðu frekar undarlega á mig og spurðu bara hvort það væri ekki ólöglegt? "Nei, nei, þetta er gott stöff" sagði ég þangað til það rifjaðist upp fyrir mér að "brown sugar" er víst líka heróín á ensku!


Allavega, núna verður tekið gott helgarfrí frá þessum deildarspítala og farið út að borða með Iben, Victoriu og eitthverjum nýjum Áströlum í kvöld. Síðan verður kíkt á Martin á morgun og blandaður einn Kúba Libra meðan talað verður um mótorhjól og konur. Össs.

No comments: