Royal Enfield Bullet?
Nú kíkti maður á kanntinn í gær. Það er langt síðan maður heimsótti hann og ég held satt að segja að ég hafi bara ekki farið í bæinn núna í viku sem verður að þykja met. Ekki skrítið að það sé kominn skjálfti í mann. Það getur reyndar líka verið að skjálftinn sé orsök einkaþjálfarans. Hann er opinberlega og bókstaflega búin að eyðileggja mig. Maður hreyfir sig eins og nærsýnn nashyrningur með Parkinson's sjúkdóminn.
En málið er bara að ég held ég sé bara búin að komast að þessu með líkamsræktir. Þetta er bara allt eitt stórt samsæri. Læknar og tryggingasölumenn eru búnir að komast að því að nútíma einstaklingar eru allt of heilbrigðir og hafa því stofað nýja starfstétt sem heitir einkaþjálfarar. Þeirra laumulega hlutverk er að eyðileggja heilbrigða einstaklinga svo þeir þurfi að kaupa sér dýrar tryggingar og heimsækja lækna sem annars hafa allt of lítið að gera. Þeir vinna líka statt og stöðugt á móti McDonald's, Philip Morris og Jack Daniel's sem hafa líka oft hafa sýnt fram á heilbrigði þess að borða feitan mat, reykja og drekka.
Við Iben vorum búin að að finna það út að það væri allt of langt síðan að við fórum í bæinn og ákváðum við auk þess að halda upp á það og það að það væri þriðjudagur í gær með því að kíkja á hip-hop. Hér er dansað hip-hop, á indverska vísu að sjálfsögðu, þar sem gömlu góðu Bollywood lögin eru endurblönduð með hip-hop takti. Hljómar eins spennandi og þvagfærasjúkdómar. En við Iben eru nú öllu vön (samt ekki í þvagfærasjúkdómum) svo við létum nú þetta ekkert hafa áhrif okkur, sötruðum þriðjudagsölið og höfðum gaman af.
Nú er maður líka að verða alvöru karlmenni og búin að vera skoða mótorhjól á netinu. Jájá, það væri nú ekkert leiðinlegt að skella sér á einn alvöru Royal Enfield Bullet. Mótorhjól verða ekki meira ekta en það. Ekkert japanskt eða nýmóðis; Góð og gild bresk framleiðsla eins og hún gerist best á Indlandi. Og að sjálfsögðu hefur hönnunin haldist óbreytt í 50 ár, við erum jú að tala um Indland. En talandi um að gera hlutina almennilega í upphafi! Kannski eitt smávæginlegt vandamál með þessi mótorhjól að þau eru almennt bara fullkomið rusl sem er alltaf bilað. En ekki að það skipti nokkru máli, þetta er bara spurningin um að vera eggjandi. Svo er maður líka vanur maður í bransanum (neinei, það var aldrei neitt að Mözdunni góðu, bessuð sé minning hennar).
Það verður samt ekki annað en sagt og skrifað að maður verður ekki svalari en það að eiga mótorhjól sem lítur út fyrir að vera byggt í seinni heimstyrjöldinni (nema þá kannski að eiga grænan Jaguar E-type '69. Þá er maður einfaldlega svalur fyrir lífstíð. Svo einfalt er það.). Það kannski vegur eitthvað upp á móti salsa dansinum sem allt stefnir í á morgun.
Ég þarf að láta skaffarann góða, bílstjórann minn, finna eitthverja sölumenn fyrir mig. Hann getur jú skaffað eins og vélamanni djöfulsins er einum lagið.

2 comments:
Fer maður þá að fara að fá póst með yfirskriftinni:Heyrðu það er skrítið hljóð........ frá þér á næstunni. Fjarviðgerðir eru mitt fag
Þröstur
said the majority settle his or her lending products punctually and also without having fees
A top consumer debt good cause expects the volume of many people making use of all of them for the purpose of enable about online payday loan credit card bills to be able to dual the. consumer debt aid organization pronounces all over have used all the payday, great interest mortgages at the moment. This good cause tells four years back how many people with them has been trivial.
pożyczka na dowód
pożyczka 40 tys
szybkapozyczkabezbik.org.pl
pożyczki na dowód katowice
pożyczka na dowód
http://pozyczki-prwatne.org.pl
http://pozyczkanadowod24.org.pl
http://pozyczkanadowod24.com.pl
Post a Comment