Saturday, November 25, 2006

Tússa skilti

Nú er ég kominn heim af þessari svakalegu mynd Casino Royal. Þarna er James Bond að spila póker við hálfblindan dana hálfa myndina á milli þess sem hann gefur sjálfum sér hjartahnoð.

Ég var nú ekkert búin að planleggja þessa bíóför en þar sem Vínar-Christian var að fara á hana með nokkrum af meðbúendum sínum ákvað ég að fara með og athuga stemninguna á nýja Danna í hlutverki Nonna Bónda. Ég mætti á staðinn, galvaskur, ekki með neinn bíómiða. Að sjálfsögðu, þar sem ég bý á Indlandi, er hægt er að gera allt með smá mútum til dyravarðarins. Það fékk ég náttúrulega miða á besta stað fyrir bara tvöfalt verð. Ekki það að maður þurfi eitthvað að vera gráta yfir 15 krónum fyrir bíómiða.

Þess að geta, þá verð nú samt að segja að ég hef séð dýpri og innihaldsmeiri myndir en þessa. Það gæti reyndar verið að allur djúpi boðskapurinn í myndinni hafi verið gerður opinber á meðan kynlífssenurnunum stóð en þar sem þannig er nú háttað á Indlandi að þær komast sjaldnast í hendur venjulegs íbúa þar sem þær eru allar klipptar út. Já, það er rétt, hér er allt klippt í ræmur eins og ofvirkri föndurkonu er einni lagið og ég get sagt ykkur það að það er ekki fallegt. Sérstaklega ekki þegar maður reynir að horfa á James Bond. Níutíu prósent af Bond er jú fallegar konur og stórar byssur.

Talandi um mútur, þá þarf ég að segja ykkur frá einu í sambandi við Indland. Á Indlandi kemst maður upp með allt með smá mútum. Sem dæmi, ef manni vantar ökuskírteini þegar löggan stoppar mann þá virkar myndin af Gandhi á fimmhundruðkallinum alveg jafn vel og myndin af mér á ökuskírteininu. Ég er búin að prófa það! Við Aria vorum að keyra um á númerslausu mótorhjóli með ekkert ökskírteini. Það má maður sko alveg eftir að maður er búin að semja um verðið við lögguna.

Það er nefnilega svoleiðis að ég hef verið að hugsa um að fá mér mótorhjólaökuskírteini hérna. Hér þarf maður að taka bóklegt og verklegt ökupróf til þess að fá svoleiðis. Það er algjörlega málið ef maður ætlar sér að kaupa sér eitt Royal Enfield Bullet því það er óneitanlega ódýrara að veifa ökuskírteininu en fimmhundruðrúpíu seðlinum þegar maður er stoppaður (jú, danska ökuskírteinið virkar líka ef maður hefur þolinmæðina í lagi). Martin tók af skarið og mætti í bóklegt ökupróf og féll. Það finnst mér bara rokkaralegt og ekkert óeðlilegt þar sem ég myndi sjálfsagt gera það sama. Maður kann nú ekkert þessar blessuðu umferðareglurnar eftir tólf ár! Hann var hinsvegar svo sniðugur að hann mútaði bara prófdómaranum og fékk að taka prófið aftur og stóðst. Þetta þarf maður að læra!

En fólk er svosem ekkert verið að gera of mikið úr umferðareglunum hérna. Hér gerir fólk bara nokkurn vegin það sem það langar. Það má líka alveg segja að þegar það er heil starfstétt sem vinnur við að tússa umferðaskilti þá getur ekki verið að það sé hár staðall á nokkru öðru þegar kemur að umferðinni.


Hvað um það, í næstu viku verða svo Konunglegu Enfieldarnir skoðaðir fyrir alvöru. Hérna er linkur á þessa: "gæðaskepnu" fyrir ykkur sem langa að verða öfundsjúk. Þetta er sko fegurð.


Á morgun verður svo náttúrueðlið tekin út. Þá verða Þjóðverjar skotnir. Við erum búin að safna liði og berjast gegn þjóðverjum sem öllum ráðum. Bandamenn frá Íslandi, Finnlandi, Póllandi, Danmörku og Austurríki hafa ákveðið að taka sig saman og skjóta eins marga Þjóðverja og hægt er á fjórum tímum í Paint Ball. Spurning hvað Christian hinn þýski og hinir Þjóðverjar verða hressir með það. Við erum náttúrulega miklu betri!

2 comments:

Anonymous said...

ómæ god... Hvað þetta eru flott hjól, eitt fyrir mig takk og pakkað í rauðann jólapappír með merkimiða sem á stendur til elsku bestu systur minnar frá Hannesi Bróður... P.s. Má vera svart eða rautt. Bæ the way .. Ég er jú með próf þannig að þetta passar því jafnvel enn betur fyrir mig

Anonymous said...

Þetta er hinn fegursti fákur, einn fyrir mig líka takk, mátt sleppa papírnum. Ég er líka með próf þannig að það er ekki vandamálið.
kv. Logi frændi