Thursday, November 09, 2006

Goa? Já, strax

Nú gerast hlutirnir fyrirvaralaust. Ég er bara á leið út úr bænum í helgarferð og stefnan verður tekin á Goa á vesturströndinni. Goa er mál málanna ef maður vill gott veður, góðar stendur, gott fólk og almennt sumar-og-sól.

Hér er nefnilega vont veður.

Stinningskaldi og gengur á með slydduéli. Það myndi sjálfsagt vera stinningskaldi og slydduél ef það væri ekki logn og 23 stiga hiti en það er alveg það sama þegar það á að vera 28 stig. Hér virðist bara kólna og kólna. Ský á himni og meira að segja þarf maður öðru hvoru að fara í langerma. Ég neyta þessu. Ég er í útlöndum.

Ég hitti nefnilega hann Christian frá Vínarborg í síðustu viku og hann bauð mér með til Goa ásamt eitthverjum nokkrum öðrum af hans kyni (líka kvennkyni). Auðvitað æpir maður bara "JÁ STRAX" eins og tíðin er nú. Og að sjálfsögðu verður sko engin rúta heldur langferðabíll leigður og skellt í tíu tíma ferðalag um sléttur Indlands...húrra...

Hinsvegar kemur þetta alveg á vondri helgi. Á tímum þegar við Martin ætluðum að fara skoða alvöru græjur saman. Maður verður að vera soldið karlkyns einu sinni, hætta þessu dansrugli og skoða eitthvað sem er hættulegt, mengar og býr til hávaða (nei, ég er ekki að tala um Norðmenn). Hér er nefnilega hægt að kaupa mótorhjól fyrir sama og taka einu sinni strætó í Reykjavík. Maður þarf ekkert að tryggja og auðvitað þarf maður ekkert eitthverja prófavitleysu. Það er bara gripið, greitt, tankað og tætt. Maður getur ekki annað en titrað úr gleði.

En það er líka meira sem maður er að missa af um næstu helgi. Fleiri Íslendingar eru að kíkja til Bangalore. En eins og heyrist þá spennist maður allur upp eins og ástandsdræsa þegar maður heyrir af Íslendingum á Indlandi. Jón (þið munið nú eftir honum Jóni Íslendingi) sagði mér að Auðunn sem vinnur hjá íslenska sendiráðinu í Nýju Delhi væri að koma og kíkja í bæinn. Maður hefði nú kíkt á kappann ef maður hefði verið á staðnum og reynt að vera soldið Íslenskur. Það er langt síðan maður athugaði þetta með þessa sér-íslensku (þ,ð,ý og alla þá). Maður athugar með hann næst þegar maður er í Delhi. Við Victoria ætlum að minnsta kosti að kíkja á stemninguna í höfuðstaðnum næsta vor.

Allavega þá get ég farið að hlakka til að kíkja í mínus-þriggja-stiga-kuldann og lopahúfuna um jólinn og athugað íslenskuna þar. Expressararnir hafa nú lofað að skutla mér frá Kaupmannahöfn 21. desember og segjast samviskusamlega sparka mér úr landi aftur 6. janúar. Ekki leiðinlegt.

No comments: