Sunday, January 21, 2007

Kúplingin

Nú er ég búin að uppgötva tilganginn með kúplingunni. Ég var ekki alveg með það á hreinu hvað þetta handfang gerði á fimmtudaginn þegar ég skellti mér í fyrsta reynsluaksturinn á nýja Konunglega Enfieldinum. Ég komst líka að því að inngjöfin hægir ekki á fáknum þegar maður er kominn í lausamölina og þar sem ég sá engan tilgang með þessu fjandans kúplingshandfangi þá gat ekki gerst annað en að maður rispi á sér hægri hendina í mölinni! Þar sem þetta var bara hægri hendin var þetta ekkert mál, því að sjálfsögðu eins og margt betra fólk þá er ég örvhentur. Ég ákvað þar með að annað hvort væri að duga eða drepast, þennan villta stóðhest þarf augljóslega að temja!

Eins og góður finnskur maður sagði, þetta tekur ekki nema hálfan dag að læra þetta. Þetta tók nú alveg heilan dag fyrir mig, enda er ég skýr með eindæmum. Nú er ég farinn að geta tekið bæði hægri og vinstri beyjur, smjúga á milli flutningabíla í umferðinni (þar koma öll hestöflin sér vel) og spóla í hringi. Það þar líitð meira að kunna!

Ég held ég sé líka búin að komast að því að ef maður getur keyrt um í Bangalore umferðinni þá getur maður keyrt um allstaðar. Hér þarf maður ekki bara að hafa áhyggjur af bílum og mótorhjólum sem taka fram úr manni báðu megin (já já, ég er að vinna í því að komast upp úr öðrum gír) heldur þarf maður líka að hafa áhyggjur af traffíkinni, fólkinu, kúnum, hundunum og börnunum sem eru alltaf eitthverstaðar fyrir manni.

Hvernig sem allt er þá er þá er horft á mann á þessu svarta skrímsli með öfundaraugum!



Við Iben mældum skemmtanalífið um helgina, heimsóttum skemmtistaði, veitingahús, klúbba, komum okkur á gestalista enda mikilvægir einstaklingar, fundum eftirpartí, drukkum ólöglega keyptan bjór og hittum fullt af fólki. Allt sem þörf er á á einni helgi. Um næstu helgi verður svo löng helgi enn og aftur og þá verður maður sko að gera eitthvað skemmtilegt. Þetta kostar að fara leggja höfuðið í bleyti og finna eitthvað að fara. Svosem ef maður nennir ekki að bleyta sig mikið þá er nátturulega einfaldara og viturlegra að hringja í fólk og spyrja hvað sé planlagt. Það skyldi þó ekki verða að maður skelli sér í aðra ferð með Vínar-Christian og ástralska Trent, keyri á frönsku rivíeru austursins í Pondicherry og endurtaka Góa-ævintýrið. Ég þarf að fara taka púlsinn á þeim.

Þangað til verð ég að láta mig hlakka til. Ég þarf líka að mæta örlítið í vinnuna í vikunni enda veitir ekkert af. Þar er náttúrulega brjálað að gera og virðist bara engan endi taka. Ég þarf endilega að fara ráða meira að fólki sýnist mér. Ekki ætla ég að fara vinna yfirvinnu allavega!

Jæja, best að fara koma sér. Nú er fiskur í matinn á einu fínum veitingastað niðri í miðbæ. Ég get ekki látið fólkið bíða of lengi eftir mér.

Þangað til næst...
Nýjar myndir í myndaalbúminu...
Over-and-out...

1 comment:

Anonymous said...

Flott myndin af þér á Einfield. Coolið fer samt aðeins af þér af því standarinn er niðri ;)