Wednesday, August 30, 2006

Veðrið

Jæja, ég er búin að mæta í vinnuna í tvo daga. Vinnan hérna samanstendur eins og er nokkurnvegin af því sama og í Kaupmannahöfn svo það er engin breyting þar á, annað en að maturinn er öðruvísi og fólkið er aðeins brúnna. Íbúðin sem ég er búin að fá lánað virkar sæmilega þó svo að það séu skemmtilegir gestir úr dýraríkinu (aðallega af músakyni) í heimsókn á kvöldin. Ég er nú búin að rífa kjaft yfir því og öðru þar sem Nokia er að borga sem svarar eins mánaðar launum bílstjórans míns á dag í lán á þessari íbúð. Talandi um það, ég ætla líka að rífa kjaft yfir bílstjóranum sem talar ekki Ensku og ratar ekki í vinnuna. Rosalega er maður orðinn mikill nýlenduherra, ekki búin að vera hér nema í þrjá daga. Ég ætti kannski bara að fara panta hvítu jakkafötin, hvíta hattinn og te-bollan! En þetta er eitthvað sem maður á barasta að gera, eitt af þessum óskrifuðu reglum um stéttarskiptinguna í þessu landi.

En mikið annað hef ég ekki upplifað hérna. Ég ætla að reyna að fara eitthvað út þegar ég er búin í vinnuni í dag og aðeins að taka púlsinn á eitthverju. Ég er búin að vera fara snemma að sofa síðustu daga til að jafna mig á tímamismuninum svo það er komin tími á að gera eitthvað.

Hvað um það, hvað gerir maður þegar maður hefur ekkert að segja? Jú, maður talar um veðrið:

Ég hélt satt að segja að það væri ofsalega heitt hérna! Það er það barasta ekki! Ég þarf að mæta í síðerma peysu í vinnuna til að verða ekki of kalt. Reyndar er ekki ábætandi hvernig loftkælingar í heitari löndum eru alltaf stilltar niður í -3 gráður svo maður verður hreint út að vera vel klæddur. Frá því að ég kom er búið að vera sólarlaust, 20-24 stiga hiti og hávaða rok. Það er mjög sérstakt að þetta er það sem infæddir kalla "mjög gott veður". Því verra, því betra! Ég, uppalin á Íslandi, verð að segja að þetta brýtur mjög á allt sem ég þekki! En veðrið er samt mjög gott og mér skilst að þetta sé bara veðrið meira eða minna yfir allt árið þó það rigni ekki og er skýlaust flesta mánuði. Ekkert að því.

1 comment:

Anonymous said...

Viltu setja inn myndir takk.