Tex-Mex og Toyota
Ég kíkti í bæinn í gær. Ég bað bílstjórann minn um að finna fyrir mig eitthverja bókabúð þar sem ég ætlaði að kaupa götukort af Bangalore. Þegar hann var búin að fara með mig í þrjár kjallarabókabúðir sem frændur hans eiga örugglega allar og versla bara með notaðar bækur (og nýjar kortabækur eru sjaldan seldar með 40 ára gömlum læknisfræðibókum og reyfurum) sagði ég bara stopp!
Ég fæ nýjan bílstjóra eftir helgi.
Ég bað hann bara um að keyra mig í eina stóra og góða vestræna verslunarmiðstöð. Þar hékk ég í góðan tíma eins og sannri 13 ára Reykjavíkurmær og fann mínar bækur og var nokkuð sáttur við afrek dagsins. Ég komst hinsvegar alveg að því hvers vegna þessar stóru verslunarmiðstöðvar í Bangalore eru svona vestrænar. Það er, að sjálfsögðu, vegna þess að það eru vestræn verð þar! Ég segi samt ekki að það sé eitthvað sem jafnast á við Kaupmannahöfn eða Reykjavík, en dýrt er það samt miðað við. Að kaupa sér smá mat (Grænmetis Tex-Mex Burrito... vestrænna verður það ekki) kostar jafn mikið og hádegismaturinn í vinnunni í hálfan mánuð! En þetta er einmitt það sem gárungar segja: Að það er allt önnur markaðsfræði fyrir útlendinga en innfædda.
Þar sem ég var hvort sem er búin að henda í vesturlandapakkann þótti mér viðeigandi að fara heim og heimsækja T.G.I. Friday's (eða Chotchkie's fyrir okkur sem munum eftir myndinni Office Space) sem er í næsta húsi við þar sem ég bý. Þar voru að sjálfsögðu bara vesturlandabúar að flýja Indland í smá stund og sturta í sig amerískri hamborgaramenningu og smá bjór í leiðinni. Mér leið eins og heima :)
Ég lofa að fara ekki alveg strax þangað aftur þó svo að ísinn hafi verið mjög góður!
Nú, þar sem ég fæ nýjan bílstjóra var ekki úr vegi að fá líka nýjan bíl! Í morgun mætti þessi góði maður með glænýjan Toyota Innova…bara handa mér! Þessi fíni sjö manna bíll verður semsagt bíllinn minn næsta árið. Eftir helgi fer ég svo og vel hljómflutningsgræjur og áklæðisyfirbreiðslur í tryllitækið. Hann er meira segja svo fínn að bílstjórinn má ekki fara á honum heim heldur verður alltaf að keyra hann heim til mín og skilja hann eftir þar og láta mig fá lyklana. Ég veit svosem ekki hvurslags samningur það er en þegar maður veit að maður fær ekki að keyra meira en 3500 km á mánuði án þess að borga sérstaklega fyrir það og ég býst við að það væri fljótt að telja ef að bílstjórinn færi að flytja notaðar bækur fyrir frændur sína allar nætur.
Nú, þar sem ég er búin að fá nýjan bíl er ekki úr vegi að fá sér nýja íbúð líka! Eftir að upp komst með heimilsgestina ("sem hafði bara aldrei gerst áður", ef ég vitna í eigandann) og reyndar líka það að ég var í vitlausri íbúð allan tímann, þá var mér boðið ný og betri íbúð við hliðiná! Þá er næstum bara búið að skipta út öllu sem hægt er að skipta út! Kannski fer maður bara bráðum að skipta um vinnu líka.

No comments:
Post a Comment