Wednesday, August 30, 2006

Lang Flottastur

Nú jæja. Þið vilduð myndir.

Hérna er mynd af heiðursmanninum Amitabh Bachchan sem er flottastur...nei...ég leiðrétti... Lang Flottastur í þessu landi. Og hans ekki lítið grípandi tag-lína er: "Be healty...always". Auðvitað hefur hann líka leikið í ótal djúpum og innihaldsríkum Bollywood myndum.

Talandi um útlit Indverja. Það verður ekki sagt annað en að kvenfólkið sé jafn myndalegt eins og karlkynið er ruuusalegt! Maður er náttúrulega ekki maður með mönnum nema að yfirvararskeggrótin sé góð og myndaleg og að maður skipti vel lokkunum í miðju. Ég held ég reyni bara að vera soldið út-úr-tísku þegar kemur að þessu. Kannski er maður jafn rosalegur í þeirra augum, í röndóttri peysu og gallabuxum með brett upp á skálmarnar. Það væri nú soldið magnað!

No comments: