Sunday, August 19, 2007

Allt skipulagt

Loksins er maður komin í frí frá öllu frínu. Nú get ég séð glaður fram á rúmar tvær vikur án nokkurra flugferða eða þotuþreytu! Þetta er búið að vera mikil átök og hefur tekið á. Miklar fórnir hafa átt sér stað en uppskeran hefur verið með afbrigðum!

Tokyo er heimsborg. Tokyo er hrein. Tokyo er upplýst. Tokyo er skipulögð. Tokyo er fæðingarstaður Beyblade og Hello Kitty (sem er ennþá jafn elskuð af fimmtugum japönskum karlmönnum, þrjátíu-og-þremur árum seinna). Í Tokyo eru allir hvítari en ég (maður er jú orðinn svo asskoti brúnn) og allar konur líta út eins og Lucy Liu (já, já þú know-it-all, ég veit alveg að hún er ekki japönsk) og allir eldri karlmenn eins og gamli bón á, bón af gaurinn í Karate Kid. Já, Tokyo er mögnuð borg!

Þetta er náttúrulega sjokk fyrir mann sem er orðinn vanur Indlandi! Það eru nefnilega engar umferðareglur á Indlandi, fólk myndi frekar henda sér fyrir björg en að standa í röð og jú, þar er veröldin okkar nú bara ein stór ruslatunna!

Svo býr Arnar í Tokyo. Ég mætti hress og kátur á fimmtudag, úr ferðalag frá Kaupmannahöfn, 5 stoppum, sjö bíómyndum, einni bók og 58 tímum seinna! Ég fékk að gista hjá honum í þrjár nætur á besta stað og nota hann til að sýna mér hvað er merkilegt þar í bæ. Á þessum dögum skoðuðum við japönsk ölkelduhús, japönsk háhýsi, japanska homma og japanskar lesbíur, borðuðum grillaðan ál á hættulega japönsku götueldhúsi, hlustuðum á japanska rokktónlist, heimsóttum skemmtistaði, reyndum að láta brjálaðan útsendara Yakuza (japanska mafían, sko) koma okkur inn á aðra lokaða "skemmtistaði", mættum í íslenska-króatíska afmælisveislu og náðum að hitta fólk frá öllum heimshornum. Allt mjög skemmtilegt. Skemmtilegheitin voru meira segja svo mikil að ég tímdi ekki að sofa meira en 10 tíma yfir þessa þrjá daga!


Á fjórða degi hoppaði ég upp í flugvél og brá mér sem snöggvast til Kuala Lumpur. Þar var sofið í tvær nætur! Þó, inni á milli sem maður svaf voru verslunarmiðstöðvar og Petronas turnarnir skoðaðir (þessir tveir þar sem eldri borgarinn Sean Connery hékk utaná eins og trúður í einni lélegri spennumynd). Í Kuala Lumpur er nóg af stáli, nóg af gleri og nóg af hreinum götum!


Þannig að núna, eftir tæpar tvær vikur í dauðhreinsuðum umbúðum víðsvegar um heiminn er ég kominn aftur til Indlands góða! Hér ætla ég að reyna njóta óhreinindanna, skítalyktarinnar og óskipulagsins í tvær vikur! Jibbí!

1 comment:

Anonymous said...

Vona að þú náir að njóta þessara tveggja vikna í botn!