Veizla
Þriggja daga veisla varð þetta af. Forfeðurnir hefðu aldeilis orðið stoltir. Engin var þó hoggin eins og hefði tíðkaðist hjá honum Agli Skallafrænda, en nokkrir urðu þó dauðanum að bráð. Það fylgir nú.
Upphitunin byrjaði með honum Jóni índíafara. Jón er einmitt Íslands-Jón sem bjó í Bangalore í fyrra. Hann býr þar ekki lengur svo til að fagna mengun, umferðaöngþeyti og of miklum hita (sem hann verður víst því miður að lifa án á Íslandi), bauð hann mér í heimsókn á hótelbarinn á föstudag. Allt það endaði inni á hótelherbergi með tóman minibar.
Kjötbollur, ostar, kökur, kokteilar, flugeldar, sprengiur, gjafir, brjálæðir nágrannar, reiðir öryggisverðirnir og veisla til klukkan níu um morgun var í boði fyrir þrjátíu og fimm manns á laugardaginn. Betri uppskrift af góðri veislu er aldeilis vandfundin. Vinir mættu og héldu upp á núllið í endanum á aldrinum mínum fram eftir nóttu og tókust að breyta íbúðinni minni og grasflötinni í eitthvað sem líkist Saigon ’71. En sem betur fer duga 200 rúpíur í þjórfé og heimilshjálp til fela öll merki um að nokkuð hafi gerst. Heimilshjálpin hefði án efa fengið metalíur hjá Sovjeska hernum hefði hún unnið í áróðursdeildinni sem sá um að eyða verksummerkjum.
Shareena, kærasta þýska-Christians (hins fyrsta) kom og hjálpaði til. Hún átti líka afmæli svo hún fékk að deila herlegheitunum og gestunum með mér.
Til að toppa þetta var svo haldið rakleiðis á sunnudag í kampavínsbrunch með Iben, Victoriu og nokkrum Svíum. Indverskt hlaðborð, kokteilar, sundlaugabakki og amerískur hamborgari voru aðalsmerkið allan daginn og þar var sólin sleikt eins og brúni Beckham hefði einn orðið glaður yfir.
Nú er svo framundan vika í afslöppun og heil óskipulögð helgi. Enda segi ég nú bara: Kominn tími til enda kominn á fertugsaldurinn! Efast samt um að það verði mikil afslöppun, nú þegar búið að bjóða í grill á morgun hjá þýsku nágrönnunum, partí á miðvikudag hjá indverska Viren, billjard á fimmtudag með Christian (númer tvö) austuríska og annað grill á föstudag með austuríska Ingo. Svo er einkaþjálfarinn að grátbiðja mig um að hlaupa maraþon um helgina.
Eins gott að það er annað frí á leiðinni eftir tvær vikur!

6 comments:
Til hamingju með afmælið!
En ein spurning, ertu alltaf í fríi?
Takk takk. Bara í fríi þegar yfirmaðurinn minn verður of stressaður :)
Þetta er ekki frí. Þetta er það sem Bresku nílenduherrarnir kölluðu stjórnkænska. Til hamingju gamli minn, með afmælið. Sjáumst hressir. Ekki veitir af að hvíla sig með þessa heimsókn vofandi yfir sér.
Þröstur
Sæll og blessaður Hannes
Ég hitti pabba þinn og hann sagði mér frá síðunni þinni. Er dottin inn í að lesa bloggið þitt, þvílíkt ævintýri.
Kallinn bara orðinn 30. ára, það styttist all ískyggilega í þetta hjá mér.
Bið að heilsa
Magga Bjarna
Til hamingju með afmælið.
kveðja úr hólmgarði 12
Innilega til hamingju með daginn... um daginn :-/
Ég bið að heilsa öllum sem ég þekki úti á lífinu í Blore! Er ekki frá því að annað slagið sakni ég líka mengunarinnar, umferðarinnar og alls hins.
Knús,
Sigrún
Post a Comment