Wednesday, November 25, 2009

Umferðateppa -- Traffic jam

Hafiði eitthverntíman lent í umferðarteppu? Einu sinni lenti ég í tveggja tíma umferðarteppu á þýsku hraðbrautinni fyrir utan Hamborg. Ég hélt að ég myndi enda sem trylltur fjöldamorðingi að vera fastur í bíl í tvo tíma og með það eina til "skemmtunar" þýska slagara ómandi úr útvarpinu. Hvernig er þá að vera fastur í rútu í 13 klukkustundir í miðri eyðimörk í Perú? Það er mjög lítil skemmtun. Það þurftum við víst að upplifa á okkar lítið stutta ferðalagi frá Cusco til Lima.

Það byrjaði nú með því að við vildum fara til Lima höfuðborgar Perú. Ekkert að því og það virðist að fólk geri það nú á hverjum degi. Hefðbundna leiðin milli Cusco og Lima sem hefði eflaust tekið u.þ.b. 12 rútuklukkustundir var lokuð þar sem brjálaðir verkamenn voru í verkfalli og voru líklegast búnir að byggja myndalegan bálköst á miðjum vegi úr gaddavír, bíldekkjum og ljósastaurum. Sá krókur hefði kostað: 12 tíma! Krókurinn var farinn og, viti menn, brjálaðir verkamenn voru líka í verkfalli á þeirri leið, búnir að byggja myndalegan bálköst úr gaddavír, bíldekkjum og ljósastaurum á miðjum veginum. Þá er lítið hægt að gera nema bíða í 13 tíma, gefast upp á biðinni, ganga í 2 tíma til næsta bæjar, taka rútu í næstu borg, keyra yfir hund, stoppa á miðri leið til að skipta um dekk og að lokum skipta um rútu. 40 tímar, takk fyrir! Við hefðum örugglega átt að velja annan dag til þess að fara til Lima!

Eftir tvær vikur í fjöllunum erum við komin til Lima. Búin að skoða hið stórkostulega Machu Piccu, búin að ganga á fjöll og hættur að pústa eins og sextugur kolanámuverkamaður sem er búin að reykja tvo pakka á dag af filterslausum Camel síðan var tólf. Komin niður á jafnsléttu og farinn að geta náð andanum aftur. Sumir segja að maður venjist háfjallaloftslaginu en ég held að það sé bara bull. Ég held að maður eigi bara að halda sig frá fjöllunum. Þar er líka bara kalt!

Í höfuðborginni erum við búin að sinna menningarþörfinni. Skoða kirkjur og söfn. Þetta mætti kannski lesast þannig að við erum bæði búin að fara í bíó og á Pizza Hut! Ég hef verið uppfullur af þeirri hugmyndafræði ástæðan fyrir því að maður borgar sig inn í bíó er að maður horfir á kvikmynd í friði frá upphafi til enda. Það virðist sem mín hugmyndafræði sé ótrúlega takmörkuð því hérna mætir fólk seint og illa í bíó og riðst inn í miðju plotti, lætur símann hringja, babblar í símann, lýsir allt upp með vasaljósi, lætur börnin grenja, dæsir og æpir og riðst síðan út í miðri lokasenu áður en vondi kallinn er drepinn. Ekki ósvipuð upplifun eins og á dönsku ölhúsi á laugardegi klukkan hálf tvö um morgun.


Núna erum við á leið til Arequipa í suður Perú. Þar býr ríka fólkið og þar eru stórkostuleg gil og fjöll. Fleiri fjöll og meiri kuldi. Get varla beðið!
Have you ever been in a traffic jam? Once I was in a two hour traffic jam on the German Autobahn just outside of Hamburg. I thought I would end up as a crazy serial killer being stuck in a car for two hours with German pop music coming from the radio as the only “entertainment”. How about being stuck in a bus for 13 hours in the middle of the Peruvian desert? There is very little fun in that. That we had to experience in our not so short trip from Cusco to Lima.

It started with the fact that we wanted to go to Lima, the capital of Peru. Usually there´s nothing wrong with that and people do that every day. The typical route from Cusco to Lima, which had taken approximately 12 hours, was closed since mad workers were striking and most likely had made a grand fire on the middle of the road out of barbed wire, used car tires and light poles. That detour would have cost: 12 hours! We took the detour and, I kid you not, mad workers were striking and had made a grand fire on the middle of the road out of barbed wire, used car tires and light poles. Then there´s very little to do other than wait for 13 hours, give up on the waiting, walk for 2 hours to the next village, take a bus to the next town, drive over a dog, stop midways to change tire and finally change bus. 40 hours, thank you very much! We probably should have picked another day to go to Lima!

After two weeks in the mountains we have arrived in Lima. Done looking at the spectacular Machu Piccu, done walking up mountains and done breathing like a sixty year old coalmine worker who has been smoking two packs of filter-free Camel since twelve. Now we´re back to sea level and has started breathing again. Some say that you get used to the mountain air but I think that´s rubbish. One should just stay out of the mountains. It´s also just too cold there!

In the capital we have been experiencing culture. Looking at churches and museums. Maybe this could be read as we have both been to the cinema and to Pizza Hut! My ideology of the cinema has been that you pay for the ticket to watch a movie in peace from the start to the finish. It looks like that my ideology is very limited since people here come late and stumbles in a middle of a movie plot, let their mobiles ring, talks on the mobiles, alights the whole hall with their flash light, lets their kids cry aloud, calls out and stumbles out before the bad guy is killed in the end. An experience not unlike a one from a Danish tavern at one thirty on a Saturday morning.

Now we´re on our way to Arequipa in South Peru. There the rich people live and there are great canyons and mountains. More mountains and more cold. Can´t wait!

1 comment:

Anonymous said...

múuuuhhhhaaaaaa, 13 tímar í rútubið, vá maður getur bara gert það hvar sem er. Þarf varla að þvælast hálfan hnöttinn til þess. Ég get bara boðið þér í snjóferðalag með Þresti þar sem þið getið fest ykkur í svona nokkra tíma. - Vona annars að það gagni betur að komast leiða ykkar áfram. Eruð þið með plön um hvar þið ætlið að vera um jólin? Kannski maður kíki.... eða sendi pakka fra Amazon.

Góða ferð áfram, Eydís með Þröst við hliðina á sér