Póetískur í Ríó
Þá er maður búin með Rio De Janeiro og ekki enn búið að ræna okkur! Suður Ameríka liggur að fótum okkar, svo maður reyni nú að vera soldið póetískur. Ríó býður upp á gott kaffi, rjómalagðar strandir og rjúkandi veður.
Við mættum í Salsaborgina síðasta laugardag og plöntuðu okkur í listamannahverfi borgarinnar, Santa Teresa! Þar fundum við hótel sem vildi hýsa okkur í vellystingum. Hótel
í eigu listamannapars sem eiga sundlaug. Eftir fjóra daga erum við búin að labba af okkur fæturna í gegnum skuggahverfi sem ríkidæmi, niðurnídd stórhýsi sem glæstar glerbyggingar. Yfir strendur Copacabana og Ibanema, framhjá fáklæddu fallegu fólki sem virðist eiga það sameiginlegt að vera annað hvort með yfirstækkuð brjóst eða yfirstækkaða magavöðva. Fyrir utan það þá erum við búin að villast í strætisvögnum, villast inn í fátækarhverfi, villast á matseðilinum og villast um. Einmitt það að stima inn í fátækahverfi, tveir bláeygingar með hundrað og fimmtíuþúsundkróna myndavél, er jafn slæm hugmynd og fullur prestur í vændishúsi. Maður lærir af mistökunum!
Núna er stefnan tekin á Sao Paulo með örlitlu stoppi í Parati. Rólegur smábær sem lifir á því að selja ferðalöngum Cachaca, stórhættulegt brennivín sem rennur allt of ljúft niður ef blandað er með limesafa og kallað Caipirinha! Í Sao Paulo verður Christian (sá sem var kenndur sem hinn fyrsti í annari heimsálfu) og Shareena kona hans heimsótt. Þar verður haldið við á þriðja nátt áður en haldið verður áfram suður. Spurning hvort verði boðið upp á Caipirinha þar?

1 comment:
Gaman að sjá líf hérna. Gangi þér vel á ferðalaginu
Post a Comment