Friday, November 09, 2007

Amerísk gildi

Nú er maður byrjaður í nýrri vinnu. Það má nú deila um hvort heilastarfsemin mín hafi verið alveg á fullum snúning þegar ég ákvað að byrja í vinnu sem krefst á hverjum morgni ferðalags hálfa leið til Noregs! Það er nefnilega þannig að vinnan mín er í Allerød á norður Sjálandi, sem myndi samsvara því á Íslandi að vinnan væri á Patró og maður byggi í Reykjavík!

Þetta þýðir einfaldlega almenningssamgöngur, það er bara ekkert annað í boði. Hjól kemur ekki til greina því ég er ekki að fara að henda í íþróttapakkann með amfetamínofneyslu og getuleysi og þar sem það stendur ekkert til að fara í spor Lance Armstrong þá hjálpar uppfinningin "bíll" voðalega lítið. Að kaupa bíl í þessu landi gerir engin heilbrigður einstaklingur því fyrir ríkisstjórn þessa lands (sem við getum kallað alveg eins kallað Líbya) þá er það að eiga bíl jafn slæmt og að geyma AK-47 riffla í neðstu dótahillunum á leikskólum borgarinnar. Þeir hafa bundið svo um skatthnútana að fólk þarf að vinna árum saman (ekki ósvipað því sem tíðkaðist í Sovétríkjunnum sálugu) til að hafa efni á eitthverri gamalli, ryðgaðri dós og það til þess eins að vera hæddir af hjólafólki sem allt vill vera eins og Lance og þykir það djöfullegt að sita inní upphituðu tæki og velja sjálfur hvert maður vill fara. Einfaldlega, þeir sem eiga bíl í Danmörku eru illmenni.

Bílahatursmafían hefur líka skipulagt hverfi borgarinnar, eins og til dæmis Nørrebro þar sem ég bý, til að það sé eins erfitt að leggja bílum þar eins og að ætla að stofna syngjandi bróderingarklúbb meðal Vítisengla. Það eru engin bílastæði meðfram götunum (það þarf jú að vera pláss fyrir hjólafólkið), bílastæðishúsin eru sérhönnuð fyrir fólk sem á ekki bíla með því að hafa þau lokuð hálfan sólahringinn og allar götur eru einstefnur (nema náttúrulega fyrir hjólafólk).

Ég hef þó átt bíl í Danmörku, blessuð sé minning hans, svo ég hef í gegnum blóð og tár byggt upp nokkuð þol gagnvart bílahatursmafíunni. Það gæti þó ekki verið annað en að eftir að hafa ferðast með almenningssamgöngunum í tvær vikur, sem fyrsta lagi kostar það sama og velta lítils Afríkuríkis og í öðru lagi brennir upp hálfum deginum þá er aldrei að vita en að heilastarfsemin mín haldi áfram að vinna á hálfum snúning og maður kaupi sér aftur bíl. Maður leggur ýmislegt á sig til að sofa hálftímanum lengur á morgnana!


En eins og ég sagði þá er ég byrjaður í nýrri vinnu. Ég hef komist að því að þrátt fyrir að skrifstofan mín liggi í Danmörku þá hafa kanarnir (þeir sem eiga þetta kompaní) meira vægi í hvernig fyrirtækið er rekið, enda fleiri, stærri og meiri. Þannig að fyrirtækinu er mikið til stjórnað eftir hugmyndum þeirra frjálsu. Það má svo geta þess að ég kem frá finnska sósíalfyrirtækinu Nokia þar sem allir eru jafnir (samt sumir jafnari en aðrir en þetta er jú næsta land við fyrrverandi Sovétríkin) svo ég veit ekki hvað almennt tíðkast í bransanum. Samkvæmt amerískri hugmyndafræði er starfsmennirnir alltaf glæpamenn sem hafa það eina hlutverk að stela eins mikið frá fyrirtækinu og láta sig svo hverfa áður en fyrirtækið fer í málaferli við það. Það þýðir að yfirmennirnir þykja það sjálfsögð krafa að fá að fylgjast með starfsmönnunum sínum og setja þeim reglurnar í anda Samúels Frænda. Fyrir mig er þetta ekki alveg það sem maður er vanur frá gömlu góðu Danmörk þar sem allir í skóginum eru vinir og starfsmanninum yrði hjálpað upp í bílinn ef það vildi svo til að honum væri mætt úti á bílastæði með peningaskáp fyrirtækisins í fanginu!

Fyrir mig og okkur Danmerkurbúa, þýðir þetta bara að nú verði lagt á ráðin til að sannfæra Ameríkana um gæði innlendra gilda, ekki ósvipað og kanarnir reyndu í Írak! Það þykir þá til hæfi að byrja sem fyrst á pretikuninni svo á mánudaginn er stefnan mín tekin á höfuðstöðvarnar í Kísildalnum hjá San Fransico í Kaliforníu.

Nú fáum við að sjá eftir þrjár vikur á amerískri grund hvort sósíalísku gildin verði hrakin burt með amerískum T-beinssteikum og ódýrum mótorhjólastígvélum eða hvort Kanarnir verða farnir að syngja “Soyuz nerushimy respublik svobodnykh” áður en ég fer!

2 comments:

Nökkvi said...

Til hamingju með nýju vinnuna. Það verður gaman að heyra frá Ameríkuferðinni. Fyrst þú komst með Royal frá Indlandi hlýtur þú að koma með Chopper frá USA.

Anonymous said...

Halló Hannes
Velkominn til Danaveldis. Ekki gefa þig fyrir auðvaldssvínunum í Brjálaríkjunum. Mundu að kommúnistar finnast um allan heim. Hnefinn upp í loft og nallinn á vör
Félagi Þröstur