Wednesday, March 05, 2008

Sjónhverfingar flugfélaganna

Það er merkilegur staður sem ég bý á. Hann kallast Norðurbrú. Þar dvelst ég einstaka sinnum á milli flugferða og barferða. Það skemmtilega við þennan stað er að alltaf gerist eitthvað nýtt. Um daginn fengum við beirútskt þema í götuna með brennandi Volvó á hvolfi, Kósovó daga með sprengjum og brotnum rúðum og Líbanon kynningu með tuttugu ribbaldalöggum (þið vitið, þessum með hjálminn og stóru byssurnar) marsandi framhjá húsinu og inni í stigaganginum. Það verður ekki hægt að segja annað en gatan mín sé einstaklega alþjóðleg. Mig minnir einmitt að í nýju Rambó strákamyndinni sem ég sá í gær (sem ég er mjög glaður og stoltur yfir að hafa séð) að ég hafi séð glitta í götuskiltið mitt á milli þess sem hausar voru sprengdir og óvinir aflimaðir.

Þeir kapparnir hjá lögreglu Kaupmannahafnar eru samt lítið að standa sig. Þeim finnst að ástandið á Norðurbrú sé ekkert til að eyða tíma í ef maður getur kúað hinn löghlýðna borgara í öðrum hverfum. Um daginn lenti ég nefnilega í þeim eftir að ég setti mótorhjólið mitt í gang úti á gangstétt til að finna hvort síðustu töfrabrögðin á rafkerfinu (allar viðgerðir á rafkerfi konunglega Enfields verða að flokkast sem töfrabrögð) bæru eitthvern árangur. Löggan, sem hefur greinilega ekkert annað betra að gera sýndi vald sitt og stolt þar sem fólk brýtur ekki af sér, gaf mér sekt upp á 6 þúsund danskar krónur fyrir að brjóta öll umferðalög í bókinni. Ótryggt hjól, óskráð hjól, skírteinislaus, próflaus og hjálmlaus takk fyrir! Eina sektin sem vantaði var bara að ég hafi reynt líkamsárás á lögregluþjóninn (sem hefði reyndar verið alveg þess virði). Og ég sem var ekki einu sinni að keyra, í T-shirt í 5 stiga hita...

Til þess að vera þó ekki allt of mikið í skotlínunni í ofbeldisfullu Kaupmannahöfn þá skrapp ég til Belfast á Norður Írlandi fyrir nokkrum vikum þar sem rólega fólkið býr og þar sem maður getur farið óvopnaður á skemmtilega rokktónleika.



En nú er ég í flugvél. Þessari númer 12 á þessu ári. Eins og ég hef svo oft sagt áður þá eru “vá” áhrifin af flugferðum löngu horfin. Farþegaflug eru jafn leiðinlegur og óþægilegur ferðarmáti eins og að ferðast í átjándu aldar fangavagni. Mín kenning er sú að þetta er fólk hægt og rólega að komast að og nú keppast flugfélög við að búa til eitthvað sem gerir flugferðir “áhugaverðari” en þær eru í raun. Til að halda kálinu á réttum stað hjá farþegum þá finna flugfélög upp sínar tegund af sjónhverfingum svo fólk gleymi því að það sé fast í allt of lítilli niðursuðudós með fullt af fúlu fólki nálægt sem það kærir sig ekkert um. Sem dæmi þá reynir British Airways strax að svæfa ferðalanga með ómældu magni af ókeypis gini og tónik, American Airlines gefur þeim holskeflur af súkkulaði og gosi svo fólk lendir í sykurtransi, Thai og Singapore Airlines skaffa fallega flugþjóna og Icelandair... ja, þeir reyna að selja þér eitthvað af Saga Boutique vagninum, því ef þeir spyrja nógu oft hvort þú viljir kaupa eitthverja séríslenska skartgripi búnir til úr hvalaeistum, þá hlýturðu að gleyma að þú sért að fljúga.

Þetta Hong Kong flugfélag sem ég flýg nú með, Cathay Pacific, hefur mér ekki tekist að setja fingurinn á. Ég finn þó merki ýmissa sjónhverfinga. Sem dæmi spila þeir jólalög með kínverskum texta í hljóðkerfinu (það er mars), gefa MSG splæsta núðlusúpu í stað kaffis og sýna kvikmyndir frá fjórða áratug síðustu aldar. Kannski þeirra aðferð sé að rugla fólk svo mikið í ríminu að það veit ekki hvort það sé í 10 kílómetra hæð eða á 10 kílómetra hraða.


Núna er stefnan sem sagt í fyrsta skipti sett á Taiwan. Þangað er ég sendur með vinnunni til að beita minni sérkunnáttu á viðskiptavinina okkar. Eitthvern vegin hefur mér óvart tekist að sannfæra valdamikið fólk um að ég hafi eitthverja sérkunnáttu (sem ég hef ekki... og ég er ekki þekktur fyrir hóværð) svo ég er sendur í gin ljónsins í rúmlega viku án þess að vita hvorki upp né niður í hvað ég á að gera. Samt, ef allt fer illa get ég þá í það minnsta hjálpað þeim að búa til kaffi. Ég get bara verið sáttur fyrir að komast úr dönsku hrakveðri í sól og 25 stiga hita þó svo ég líti á það sem nútíma gapastokk að eyða tveimur og hálfum sólahring á flugvöllum og í flugvélum.


Ég get samt bara óskað þess að það verði eitthvað rólegra framundan. Síðstu vikur eru búnar að vera ansi þéttar með tónleikum á Íslandi, afmælisveislu hjá Gulla og Laufeyju, innflutningspartíi hjá Nokia Allan, huggulegum kvöldmati með Betu, leikhúsi hjá Hauki og pókerlausu kvöldi með Inga og Einsa. Ég get samt alveg eins beðið til Allah og Tígulgosans því það stendur víst til að heimsækja Ísrael og Shanghai á næstu vikum.

Og hver veit nema maður flýji ofbeldi og lögreglur Kaupmannahafnarborgar og kíki í frí til Íslands aftur í næstu viku? Þar er nefnilega skemmtilegt fólk og menn sem vilja gefa manni mótorhjólapróf.

No comments: