Farvel Frans
Ekkert endist að eilífu. Ekki einu sinni forsetaembætti Bush.
Nú eru nánast allir sem ég umgengst í þessari blessaðri borg að flytja til baka. Kveðjuveislur grátur og tilfinningatjáningar orðnar daglegt brauð. Kannski sem betur fer þegar ég flyt í lok ágúst þá verða örugglega allir aðrir farnir svo að ég pakka bara saman, slekk ljósið og segi "Farvel Frans" við flugbrautina!
Þannig að núna ætla ég bara að drepa tímann og fara í ferðalög. Kannski að ég hafi orðið svo örvæntingarfullur yfir þessu að allir væru að fara að ég ákvað að tapa mér og skipuleggja 18 flugleggi fyrir fjórar vikur. Helgarferð til Mumbai með austuríska Christian um miðjan júlí og helgina eftir Delhi með finnska Jari. Chennai daginn eftir það og helgina eftir öndunarpípa á Andaman og Nicobar eyjunum úti í Bengalflóa með Nokia Allan. Gleðiferð til Kaupmannahafnar fyrstu helgi í ágúst, rétt áður en maður stígur upp í flug til Tokyo með tveggja daga verslunarstoppi í Singapore.
Veit ekki hvað vinnan mín segir við þessu. Spyr hana í lok ágúst.
Áður en ég skelli mér í flugvélamatinn þá þarf ýmislegt að gera. Maður getur ekki verið þekktur fyrir að vera íslendingur og fullnýta ekki þetta sex rúmmetra gámapláss sem sent verða á kostnað fyrirtækisins til Danmerkur. Húsgögn þarf að kaupa svo ég brá mér í gær á vit húsgangaverslananna.
Að versla húsgögn á Indlandi er óneitanlega öðruvísi. Það er ekki mikið þetta: "Sérðaggí hillunni séðaggi til" eins og maður á að venjast. Nei, hér slysast maður inn í búð, spyr hvort þeir eigi fallegt sófaborð og manni er plantað úti í horn með þykkar bækur sem heita eitthvað á þá leið: "Fallegustu heimili í heimi", "Verðlaunahúsgögn frá Japan" og "Húsgögn eftir Arne Jacobsen, Alvar Aalto og aðra fræga kappa" og mér sagt bara að finna eitthvað sem mér finnst fallegt. Ekki slæmt! Þeir hafa óneitanlega tekið heildarhugmynd Ikea á annað plan. Þeir voru tilbúnir að "afrita" það sem ég vildi upp úr bókum og sníða það eftir því sem ég vildi! Hver þarf að fá innanhúsarkitektinn heim til sín þegar maður getur bara pantað verðlaunaheimilið?
Ég sagði bara við félagana að þetta væri aðeins of mikið fyrir mig. Ég þyrfti tíma í einrúmi til að finna út hvort ég vildi frekar miðaldartrébekki eða "egg"-stólinn frá Arne inn á mitt heimili. Ég þarf greinilega að kíkja við aftur með eitthverjar betri hugmyndir í hausnum!
Nóg með blaðrið. Þarf að fara drífa mig í síðustu kvöldmáltíðina með þeim Iben og Victoríu. Þær fara víst á morgun fyrir fullt og allt á vit ævintýranna í Danmörku svo þær þarf að kveðja...aftur... partíið í gær var greinilega ekki nóg!

1 comment:
Með öðrum orðum þá er semsagt pláss fyrir annað Royal Enfield í gámnum? ;)
Post a Comment